Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 141
BÚNAÐAKRIT
135
rnn að sléttast, og á nokkrum bæjum er búið að al-
íílétta þau.
En það heflr verið og er erfitt að slétta þau í Stranda-
sýslu, eins og víðar um Yesturland. Túnin eru sem sé
víða grýtt og jarðvegurinn grunnur. Sumstaðar kemur
upp vatn í þeim, er bleytir þau, og verður þar að gera
skurði eða lokræsi til að þurka. En það er erfitt verk
og kostnaðarsamt, að lokræsa mikið í grýttum túnum.
Sem dæmi um það, hvað tún eru giýtt, og erfitt að
slétta, skal þess getið, að á Ljótunnarstöðum kom
upp úr 300 fermetra bletti í túninu grjót, sem nægði
til að hlaða upp veggi að kjallara undir baðstofu, sem er
7x/2X33A metrar að stærð.
Litið er um áveitur í Strandasýslu, enda óvíða um
álitleg engjasvæði að ræða til þeirra hluta. í Bæ i Hrúta-
firði er veitt á. Sömuleiðis hefir eitthvað verið átt við
það, einkum áður, fiam í Bitrunni (í Snartartungu) og á
Eelli í Kollafirði. Mætti sennilega á þessum báðum stöð-
um laga eitthvað til i þessu efni, með því að leiða vatnið
betur um svæðið með skurðum og fyrirhleðslum. En
annars eru beztu slægjur á þessum jörðum, Felli og
Snartartungu, eins og áður er getið, og árnar, sem renna
þar ofan dalina, flæða yfir þessar engjar bæði haust og
vor, og þær liggja undir ís að vetrinum.
Komið hefir til tals, að veita mætti á svonefndan
Tungugrafarflóa, sem tilheyrir Tungugröf. Flóinn er stór,
og mestur hluti hans flatlendur, en jafnframt afar-blautur.
Þyrfti því að ræsa hann fram, ef veita ætti á hann vatni,
og enda hvort sem er. Til áveitu á flóann mætti taka
vatn úr Tunguá í Tröllatungulandi, neðan til við Fífla-
stekk. Hlaða þar svo fyrir vatnið að neðan eða nndir
það, með því að hleypa aðfærsluskuiðinum upp á kafla,
og grafa svo skurðinn gegn um mel- eða móa-barðið
neðan við Miðásendann. Kostnaðurinn við verkið mundi
verða, með öllu, 1200—1500 kr.