Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 155
BUNAÐARRIT
149
jHestur eru fallegir í sýslunni og vel með farnir. Eg
sá marga brúkunarhesta, sem eru 133—136 sentím. á
hæð. Á sýningunni á Heydalsá 1909 voru sýndar 10
hryssur, er mældust 135—138 sentím. á hæð.
En annars eru hrossin þar helzt til of mörg, því
Strandasýsla er ekki vel löguð fyrir hestarækt. Það borgar
sig betur að eiga þar fé en hross. En ástæðan til þess,
hvað þau eru þó mörg, er sú, að heyskapur er þar víða
erflður og langur heybandsvegur á mörgum bæjum, en
ókleift viða að gera akfæra heybandsvegina.
Sanðfé er jafnaðarlega fallegt í Strandasýslu og vænt
til frálags. Vænleiki fjárins í sumum sveitum þar, t. d.
víða í Steingrímsfirðinum og Hrútafirðinum, er svipaður
og þar, sem bezt fé er hér á landi.
Á Melum í Hrútafirði, Fjarðarhorni, Bakkaseli og
Heydnlsseli er vænst fé að allra sögn, og svo er enda
víðar þar í sveitinni. Dilkar frá þessum bæjum gera að
haustinu 171/2—18 kg. (35—36 pd.) kjöt að meðaltali.
Þeir vænstu leggja sig á 20 kg. kjöt og þar yfir. Um
dilk írá Fögrubrekku heyrði eg getið, er lagði sig á 23Y2 kg.
(47 pd.) kjöt, og er það með því allra vænsta sem gerist.
Lifandi vigt á dilkum hjá Jösef bónda Jónssyni á Melum
er um 45 kg., og þeír vænstu hafa vegið um og yfir
50 kg.
Á Þambárvöllum er vænt fé. Meðalvigt á ánum þar
7. nóv. 1915 var 62Va kg. En þyngsta ærin var tvæ-
vetla og vó 72V2 kg. Dilkhrútur vó þar nýlega 57x/2 kg.
(115 pd.), og þyngstur dilkkroppur í fyrra haust var 22 kg.
Dilkar undan 4 ám, sem gengu á Krossárdal í Bitru,
lögðu sig á 19 kg. kjöt að meðaltali, og gærurnar vógu
4 kg. hver til jafnaðar.
Sigurður í Broddanesi á fallegt fé, eins og fleiri þar í
Fellshreppi. Eg man það, að á sýningunni að Heydalsá,
sem áður er nefnd, átti hann fallegasta hrútinn, er þar
var sýndur. Meðaldilkar gera 17 kg. kropp. Oddur í Hlíð
á einnig vænt fé. Haustið 1915 fargaði hann í einu 25