Búnaðarrit - 01.06.1917, Blaðsíða 3
bdnaðarbit.
S m j ö r b ú i n
árin 1911—1915.
Búnaöarritiö 1912 (26. árg.) flutti ritgerð um „starf-
semi smjörbúanna árin 1900—1910“. Er þar skýrt frá
rekstri þeirra og allri starfsemi þessi ár. Þar er og rakin
saga búanna frá því að fyrsta búið var stofnað (Selsbúið)
árið 1900 og til ársloka 1910.
Að þessu sinni langar mig til að skýra frá starfsemi
smjörbúanna árin 1911—1915. En sú skýrsla verður,
því miður, ekki eins ítarleg og æskilegt væri, meðfram
vegna þess, að erfltt gengur að fá upplýsingar um rekstur
sumra þeirra.
Árlega eru formönnum smjörbúanna sendar fyrirspurn-
ir um rekstur þeirra og starfsemi. Sumir þeirra svara
þessum fyrirspurnum fljótt og greinilega, og kann eg
þeim hinum sömu beztu þakkir fyrir það. En svo eru
þeir þó nokkurir, er láta það, einhverra hluta vegna,
undir höfuð leggjast að svara þessum fyrirspurnum, og
kemur það sér miður vel, er gefa á skýrslu um rekstur
búanna. En eigi skal þó fjölyrt um það frekar.
Árið 1910 staría hér 33 smjörbú, og eru þá flutt út
150000 kg. af smjöri. Síðan hefir þeim fækkað, en mest
hefir „óáranin" í búunum verið síðustu árin, einkum
1914 og 1915. Árið 1915 eru búin, sem starfa, að eins
24 alls. — Það sem fækkun búanna veldur er meðal
annars og aðallega þetta:
11