Búnaðarrit - 01.06.1917, Blaðsíða 41
BÚNAÐARRIT
199
grös, blómgast snemma og hættir við að tréna. Það þarf
því að slá það snemma, og slá það tvisvar eða þrisvar
á sumri. Þá eta skepnur það vel, en láta auðvitað illa
við því trénuðu.
H'ófrum, byggi og flœkju heflr verið sáð í nær því
•dagsláttu blett siðustu árin, og slegið um miðjan septem-
ber. Fræmyndunin í bygginu heflr þá verið byrjuð, og
stundum líka í höfrunum, en kjarninn svo lítill og ó-
þroskaður, að ekki hefir verið tiltök að ná neinu fræi
til gagns, og grasið þess vegna haft grænt til fóðurs,
■eins og nú er farið að tiðka allvíða. Flækjan hefir verið
með blómum, þegar hún heflr verið slegin.
Á góðum stað í görðum nær 6 raða bygg nokkrum
þroska, svo að fá má af því lífvænlegt korn. Hafrarnir
eru nokkuð seinni á sér en byggið.
Túrnips hefir talsvert verið ræktað til fóðurs, eins og
undanfarin ár. Gengur fóðurrófnaræktin vel, ef ekki er
skortur á áburði. Mæli eg helzt með þessum afbrigðum:
Whiie globe, blánœpu, grey stone, Öster Sundom og
bortfélzhum rófum. Það verður lítill munur gerður á
íjórum þeim íyrst nefndu; bortfelzku rófurnar verða t.æp-
lega eins stórar, en þær geymast betur.
Áburðartilraunum er haldið áfram í gróðrarstöðinni,
aðallega þó með tilbúinn áburð. Reynist hann ágætlega,
einkanlega ef hann er borinn á samhliða búpenings-
áburði, hvor þeirra til helminga. Af tilbúnu áburðar-
tegundunum þremur er minst þörf fyrir kalíáburð hér í
gróðrarstöðinni; hinar tvær áburðartegundirnar eru ómiss-
andi, ef ekki er gnægð búpeningsáburðar.
Síðastliðið sumar var reyndur tilbúinn áburður inn-
lendur á graslendi, síldarmjöl og fiskmjöl, og gafst mjög vel.
Hjá bændum út um land eru gerðar tilraunir með
búpeningsáburð. Verður síðar nánara skýrt frá árangri
allra þessara áburðartilrauna.