Búnaðarrit - 01.06.1917, Blaðsíða 83
BÚNABARIIIT.
V innuh júaverðlaun 1918.
Umsóknarfrestur um þau er til febrúarloka það ár.
Þeir sem sóttu um verðlaun 1917, en fengu þau ekki
þá, og óska að fá þau 1918, verða að sækja að nýju.
Umsóknum þurfa að fylgja prestsvottorð um aldur
hjúanna, vistarár og vistarstaði, og vottorð húsbænda
um að hjúin hafl verið vel vinnandi og dugleg, dygg,
iðin, sparsöm og dagfarsgóð.
Umsóknir mega vera hvort sem vill frá hjúunum
sjálfum eða húsbændum þeirra.
NámsskeiÖ fyrir eítirlitsmenn
nautgriparæktarfólaga verður haldið í Reykjavík 1. nóv
til 15. des. 1917. Meðal annars verður þar veitt tilsögn
í að gera berklaveikisrannsóknir á kúm og að bólusetja
sauðfé við bráðapest. Nemendur fá 30 króna námsstyrk,
og þeir sem nokkuð langt eru að fá ferðastyrk að auki,
ef þeir eru ráðnir eftirlitsmenn hjá nautgriparæktarfélagi
i samráði við Búnaðarfólag íslands. Umsóknir sé sendar
búnaðarfélaginu.
Pélagar Uúnaðai’félags íslands,
sem flytja sig, eru beðnir að tilkynna félaginu það, svo
að heimili þeirra verði rétt talin á félagaskránni.
Ef félagsmenn fá ekki Búnaðarritið með skilum, eru
þeir beðnir að skýra frá því sem fyrst, svo að úr verði
bætt.