Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 46
284
BÚNA.ÐARRIT
leiðir eiga til kaupstaða. Frá einu búnaðarfélagi (Staðar-
hrepps í Húnavatnssýslu) heflr komið til stjórnarnéfndar-
innar tillaga um, að kornforðamálið verði tekið til með-
ferðar á búnaðarþingi i sumar, og þar óskað breytinga
á kornforðabúralögunum og bjargráðasjóðslögunum. Og
úr Þingeyjarsýslu heflr komið erindi um innlendan fóður-
bæti. Mun vera von á tillögum í þessa átt víðar að.
Munu þær tillögur, sem komnar eru og koma kunna,
verða lagðar fyrir búnaðarþing. Væntum vér að þær
verði teknar þar til meðferðar. Ástæðu teljum vér vera
til, að búnaðarþingið beindi áskorun til alþingis eða lands-
stjórnarinnar um það, að í haust verði haft öflugt eftir-
lit með heyásetningu, svo að ekki sé lagt í neina tvísýnu
með það, að nóg fóður sé til í harðasta vetri handa skepn-
um þeim, sem á verða settar, því að voðinn, ef fóður-
skortur verður, er nú, í samgönguteppunni og dýrtíðinni
á öllum aðfengnum fóðurtegundum, margfalt meiri en
vant er, þó að alt af sé hann mikill og ægilegur.
Ostagerð. í fundarskýrslum félagsins undaníarin ár og
aðalfundarskýrslunni þetta ár er minst á gráðaostagerð
Jóns Guðmundssonar á Þorfinnsstöðum og afskifti bún-
aðarfélagsins af því máli. Síðan heflr félagið fengið skýrslu
frá Jóni um það, hvernig málið nú horfir við. Teiur hann
nú svo langt komið, að óhætt sé að hefjast handa um
ostagerð þessa í stærri stíl, þar sem osturinn er nú orðinn
nokkuð kunnur erlendis og álitleg tilboð komin þaðan
um kaup á honum. Hefir Jón í huga að koma upp all-
stóru ostagerðarbúi, sem geti veitt kenslu einum 5 mönn-
um á ári, og ætlar hann að sækja til alþingis í sumar
um lán úr viðlagasjóði, alt að 10,000 kr., til bygginga
og áhaldakaupa. Hyggur hann búið geta borið sig án
annarar hjáipar, nema ef ástæða þætti til að veita nem-
öndum einhvern námsstyrk. Jón hefir beiðst meðmæia
búnaðarfélagsins með lánbeiðni sinni. Erindi hans verður
lagt fyrir búnaðarþingið,og lætur stjórnarnefndin því fylgja
eindregin meðmæli sín.