Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 57
BÚNAÐARRIT
295
Funduv þessi var haldinn 1912, allvel sóttur, og létu þeir,
er fundinn sóttu, vel yfir og óskuðu að félagið gengist
fyrir slikum fundum framvegis með hæfilegu millibili.
í vetur barst félagsstjórninni málaleitun um, að slikur
fundur yrði haldinn nú í sumar, helzt fyrir alþing, en
vér töldum þetta ár ekki vei til þess fallið, vegna sam-
gönguvandræðanna. En ef ekki verða sömu tálmanir eða
aðrar, álítum vér að rétt sé að félagið gangist fyrir
þesskonar fundi næsta ár eða hitt árið, líklega heldur hið
siðara. Ekki er sanngjarnt að ætlast til, að menn fari
langar leiðir til að sækja fundinn styrklaust. Gert
var ráð fyrir því á búnaðarþingi 1911, að búnaðarfélagið
og búnaðarsamböndin greiddi fundarkostnaðinn hvert
fyrir sína starfsmenn, en landssjóður fyrir búnaðarskóla-
kennara. Stjórnarráðið sá sér þá ekki fært að sinna til-
lögu um það, og greiddi þvi búnaðarfélagið bændaskóla-
kennurunum dálítinn ferðastyrk. Vér teljum því sjálfsagt,
að það yrði enn að veita þeim ferðastyrk, og æskilegt
að geta líka veitt ferðastyrk starfsmönnum sambandanna,
einkum þeirra, sem lítið fjármagn hafa. Vér ætlumst nú
til, að af fénu, sem ætlað er til búnaðarfræðslu, megi
verja nokkru í þessu skyni. Bæði árin síðustu hefir orðið
nokkur afgangur af þessari fjárveitingu, og ætlum vér að
árin 1918 og 1919 megi svo takmarka annan kostnað
á þessum lið, að á báðum árunum megi draga saman
nægilegt fé í þessum tilgangi, sem vér álítum rétt að
telja til búnaðarfræðslu.
Gjaldlið 13., kostnað við félagshúsið (opinber gjöld og
viðgerðir), lækkum vér um 90 kr. hvort árið. í fyrra
fór fram viðgerð nokkur og málun á 2 stofum efna-
rannsóknarstofunnar og í sumar verða þar málaðar 2 stofur.
Búumst vér við, að næstu árin muni nægja 250 kr.
hvort árið.
Þeir liðir, sem hér eru ekki nefndir, eru óbreyttir og
gefa ekki tilefni til skýringa.