Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 60
298
BÚNAÐARRIT
Fulltrúarnir Sigurður Stefánsson og Þórarinn Bene-
diktsson komu ekki til búnaðarþings. Hafði Sigurður
Stefánsson sent símskeyti um, að hann gæti ekki komið
því við, og Þórarinn Benediktsson getíð þess í bréfi í
vetur, að líklega mundi hann ekki geta komið. í stað
Sigurðar Stefánssonar hafði varafuiltrúinn Guðjón Guð-
laugsson þá þegar verið tilkvaddur með símskeyti. En í
stað Þórarins Benediktssonar var varafulltrúinn Benedikt
Blöndal kominn til búnaðarþings, og þar sem sá vara-
fulltrúi, sem kosinn var samtímis Þórarni Benediktssyni,
var látinn, þá átti hinn varafulltrúi Austurlands, Bene-
dikt Blöndal, að sjálfsögðu að koma í stað Þórarins.
Á þessu búnaðarþingi eiga því sæti þessir fulltrúar og
varafulltrúar:
Ágúst Helgason,
Ásgeir Bjarnason,
Benedikt Biöndal,
Björn Bjarnarson,
Eggert Briem,
Guðjón Guðlaugsson,
Guðmundur Helgason,
Jón H. Þorbergsson,
Jón Jónatans-son,
Metúsalem Stefánsson,
Ólafur Briem,
Stefán Stefánsson.
Skrifari var kosinn Ólafur Briem, en Einar Heigason
garðyrkjumaður jafnframt fenginn til aðstoðar við skriftir
á búnaðarþinginu, eins og áður.
Forseti stakk upp á, að kosnar væru þessar nefndir:
reikninganefnd, fjárhagsnefnd, jarðræktarnefnd, búfjár-
ræktarnefnd, sölunefnd sveitavöru, fóðurbirgðanefnd,
nefnd til að athuga, hvort breyting skyldi gera á lögum
félagsins um fulltrúakosningu, og nefnd til að yfirfara
og úrskurða þingfararkaupsreikningana. Skyldi 3 menn