Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 66
304
BTJNA.ÐARRIT
Sama nefnd lagði fram svolátandi tillögu:
„Búnabarþingið felur félagsstjórninni að hlutast til um
við landsverkfræðinginn, að hann geri sitt ítrasta til að
útvega hjá fjárveitingarvaldinu fé til þess að kaupa handa
landinu skurðgraftarvél, hentuga við stórfeldan skurða-
gröft“.
Tillagan var samþykt í einu hljóði.
Búfjárræktarnefnd lagði fram álit sitt um styrk til
sauðfjárkynbótabús (þskj. 12.). Tillagan var eftir allmiklar
umræður samþykt í einu hljóði.
Fundur ákveðinn sama dag kl. 8 síðdegis.
6. fundur.
Þriðjudaginn 3. júlí kl. 8 síðdegis.
Jarðræktarnefnd lagði fram tillögur sinar um áveitu
á Skeiðin (þskj. 13.). Samþyktar í einu hljóði.
Búfjárræktarnefnd bar fram svolátandi tillögu:
„Búnaðarþingið leggur til að félagsstjórnin taki til
gagngerðrar athugunar, hversu haga skuli styrk til hrossa-
ræktar, svo að fyllra liði komi“.
Tillagan var samþykt með 10 atkvæbum samhljóða.
Sama nefnd bar fram þessa tillögu:
„Búnaðarþingið ályktar að fela félagsstjórninni að láta
rannsaka, hvaða mælikvarða sé heppilegast að nota við
einingareikning á fóðri hér á landi, og leggja þær at-
huganir fyrir næsta búnaðarþing".
Tillagan var, eftir miklar umræður, samþykt í einu
hljóði.
Fjárhagsáætlanirnar voru nú til fyrri umræðu. Fjár-
hagsnefnd lagði fram álit sitt (þskj. 14.). Framsögumaður
hennar, Stefán Stefánsson, skýrði það nokkru nánara til
bendingar fyrir félagsstjórnina.
Tillögurnar voru samþyktar í einu hljóði.