Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 74
312
BÚNADARRIT
4, Frá jarðræktarnefnd. Um gróðrarstöðina.
Nefndin liefir athugað erindi hr. garðyrkjumanns Einars
Heigasonar um það, að fenginn verði maður til aðstoðar
við tilraunastarfsemina í gróðrarstöðinni i Reykjavik, eða
maður, sem starfað geti á eigin hönd og óskiftur að til-
raununum.
Nefndin er garðyrkjumanninum sammála um það, að
nauðsynlegt sé að auka starfskraftana við tilraunastöðina
og færa út verksvið hennar sem allra fyrst.
Jafnframt þessu teiur nefndin nauðsynlegt, að komið sé
á fastara skipulagi og meiri samvinnu milli gróðrarstöðva
landsins, en hingað til hefir verið, og allri tilraunastarfsem-
inni komið undir sameiginlega yfirstjórn, en starfinu þá
skift i 2 aðalþætti, annarsvegar fóðurjurtatilraunir m. m.,
og hins vegar tilraunir með garðjurtir, runna og tré, og
álítur sjálfsagt, að yfirstjórnin sé falin þeim manni eða
mönnum, sem stjórna tilraununum i gróðrarstöðinni í
Reykjavík. Parf þá að fá mann með staðgóðri þekkingu og
verklegri æfingu, til þess að annast sérstaklega fóðurjurta-
tilraunirnar hér við gróðrarstöðina og liafa á hendi um-
sjón allra fóðurjurtatilrauna í landinu, en hinn þátturinn
yrði í höndum Einars Helgasonar, meðan lians nýtur við.
En nú mun enginn liér hafa kynt sér svo til hlítar til-
raunastarfsemi, hvorki bóklega né verklega, að hann megi
leljast fullfær til þess að taka að sér þetta starf, og yrði
þá að ætla ríflega fjárupphæð til þess, að hægt væri að
styrkja mann til utanfarar í þvi skyni.
Tvær leiðir eru til þess að fá manninn. Önnur sú, að
búnaðarþingið ákveði vissa fjárupphæð til að styrkja til
utanfarar þann af væntanlegum umsækjöndum, sem álitlcg-
astur þætti. Ilin sú, að upphæðin væri óákveðin, en stjórn
búnaðarfélagsins væri heimilað að verja nauðsynlegri fjár-
hæð i þessu skyni, og væri henni þájafnframt falið að leita
fyrir sér við þá menn, er lienni þætti álitlegastir til starfs-
ins, og semja við þá um styrkinn, undirbúningstímann,
dvalarstað og annað þar að lútandj.
Aðaiatriðið er, að valið á þessum nianni heppnist vel, en
kostnaðurinn er aukaatriði, og því vill nefndin fremur að-
hyllast síðari leiðina.