Búnaðarrit - 01.10.1917, Blaðsíða 100
BÍINAÐARRIT.
tJmsóknir um g-áröyrkjukenslu
í gróðrarstöðinni í Reykjavik 1918 sé sendar Einari
garðyrkjumanni Helgasyni fyrir iok janúarmánaðar.
Kenslutími 6 vikur, írá byrjun maímánaðar. Nemendur
fá 40 kr. námsstyrk, og auk þess nokkurn ferðastyrk,
þeir sem iangt eru að.
XJ msóknir
til Búnaðarfélags íslands um styrk til nautgrlpa-
ræktarfclaga 1918 þurfa að vera komnar til búnaðar-
félagsins fyrir lok febrúarmánaðar. Hverri umsókn þarf
að fylgja reikningur félagsins fyrir síðasta reikningsár
og skýrslur um fóður og mjólk, um fitumælingar, um
nautahald og um eftirlitsstarfið.
Til þess að fá betra heildaryfirlit og samræmi, er
áskilið, að öll félögin hafi í skýrsium sínum sama verð
á smjöri, mjólk og aðalfóðurtegundum, þannig: smjör
kr. 1.60, undanrenna 5 aura, taða og bezta flæðiengja-
hey 6 aura, úthey 4 aura, rófur og vothey l* 1/? eyri fyrir
hvert kg. Annað fóður verður að reikna eftir gangverði.
r
Félagar Biínaðarfélags Islands,
sem flytja sig, eru beðnir að tilkynna félaginu það, svo
að heimili þeirra verði rétt talin á félagaskránni.
Ef félagsmenn fá ekki Búnaðarritið með skilum, (eru
þeir beðnir að skýra frá því sem fyrst, svo að úr verði
bætt.
Fóðnr- og injólkurskyrslnr, 2, prentun, kosta 1 kr., ef teknar
eru í skrifstofu Búnaðarfélags íslands og borgaðar um leið, en
1 kr. 15 aura ef senda þarf.