Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 9
BÚNADARRIT
Guðmundur Helgason,
prófastur.
Forseti Búnaðarfjelags íslands 1907—1917.
Þaí var ekki auðfundinn maöur til að taka við
forsetastörfum Búnaðarfjelagsins eftir Þórhall biskup.
Þórhallur hafði verið driffjöðrin í fjelaginu. Hann var
einn af þeim fáu mönnum, sem beittu sjer fyrir
stofnun fjelagsins; var kosinn forseti þess, þegar Halldór
yfirkennari Friðiiksson varð, fyrir aldurssakir, að biðjast
undan endurkosningu, og hóf fjelagið til vaxandi viður-
kenningar með sínum alþekta dugnaði, viti og áhuga.
Búnaðarþingið hafði úr vöndu að ráða sumarið 1907,
er Þórhallur iýsti yfir því, að hann gæti ekki tekið við
endurkosningu. En þegar stungið var upp á, að fá sjera
Guðmund Helgason, prófast í Reykholti, til að taka við
forsetastörfum, þá var ráðið fram úr því vandamáli.
Þetta gerðist á búnaðarþinginu 31. ágúst 1907.
f*að sýndi sig fljótt, að fjelagið hafði fengið mikil-
hæfan mann fyrir forseta, mann, sem allir, er nokkuð
kyntust, fundu að bera mátti fult traust til; að hann
mundi halda fjelaginu í því horfi, sem svo vel var
byrjað, og sækja fram með hæfilegu kappi, athugun og
festu. Honum var það ríkt í huga, að vinna landi og