Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 38
22
BÚNAÐARRIT
'l'ilraunir með nýbýlarækt í Norðurbotnum. Þau
nýbýli, sem nú hefir verið frá sagt voru stofnuð sam-
kvæmt lögum frá 1909. En í sænska þinginu 1901 var
ákveðið að gera sjerstakar tilraunir með nýbýlarækt í
Norðurbotnum. Svæði þetta var valið við Altrásk, norður
við heimskautsbaug. Þar var numið land handa 20 býlum,
á einu þeirra átti að vera fyrirmyndar bú, það kostaði
stórkaupmaðurinn M. Freanckel í Gautaborg. Hvert ný-
býli átti að eiga um 20 ha. stórt land. Hver ha. var
metinn á 50 kr. Nýbýlin voru leigð endurgjaldslaust
fyrstu 15 árin, eftir það er greidd lág leiga og að síð-
ustu mátti nýbyggjandi fá býlin fyrir lágt verð. Það má
telja að tilraunir þessar hafi hepnast sæmilega.
Nýbýlanefndin hefir, síðan hún tók til st.arfa (1916),
látið gera margar rannsóknir viðvíkjandi stofnun nýbýla.
Hún heflr látið rannsaka mýrarnar í Norðurbotnum, og
valið úr þau svæði, sem álítast best fallin til ræktunar.
Á síðustu árum hafa verið stofnsett mörg nýbýli. Ná-
kvæmir kostnaðarreikningar hafa verið haldnir yfir alt,
sem gengið hefir til stofnunar þeirra, framræslu, rækt-
unar, vegalagningar, byggingar o. fl. Um þetta hefir
nefndin gefið nákvæmar skýrslur, og á þeim reikningum
og athugunum, í sambandi við stofnunina, hefir svo
nefndin bygt tillögur sínar um stofnun nýbýla þar norður
frá. — Úr skýrslu nefndarinnar skulu að eins tilfærðar
nokkrar tölur:
Verkalaun í Norðurbotnum hafa þessi árin verið:
1917
1918
1919
1920
1921
7— 8 kr. á dagsverk
8— 10----—
10—12----—
9—12
5— 6
Byggingar á nýbýlunum hafa kostað 6—9000 krónur.
Aðalvegir þeir, sem lagðir hafa verið, eru 3 metra