Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 52
36
BÚNAÐARRIT
nýbygejendasjóði. Úr honum á að veita hagfeld lán til
nýbyggjenda. Þetta mál er svo langt á veg komið, að
búist er við að stofnfje sjóðsins geti orðið 5 miijónir
króna. Margir eiga hjer hlut að máli, ríkið, happdráttai-
fjelög og einstaklingar.
Fjelagið hefir mjög ötula forgöngumenn og stuðnings-
menn í Noregi um land alt, og yflrleitt vinna Norðmenn
að því með dáð og dug, að rækta alt, sem frá alda öðli
heflr legið óræktað, gróðursetja skóg og klæða landið í
nýjan búning.
Sem sagt er það aðallega „Ny Jord“ og „Smábruk
og boligbank", sem sjá um stofnun nýbýla í Noregi.
k síðustu árum heflr það verið á döflnni, að ríkið færi
að stofna nýbýli sjálft; þetta hefir þó eigi komið til
framkvæmda að öðru en því, að síðustu árin heflr ríkið
lagt fram all-mikið fje, til að bæta úr vinnuleysi. Það
hefir stofnað til ýmissa framkvæmda, sem þessir atvinnu-
leysingjar hafa unnið við, þar á meðal nýbýla, því er
hagað þannig, að ríkið kaupir land, sem þykir hæft til
nýbýlaræktar. Þetta land lætur það svo ræsa og undir-
búa til ræktunar og rækta, hús eru síðan bygð og ný-
býlin seld eða leigð, þá þau eru fullgerð. — Þessi starf-
semi er enn á frumstigi, þó er norska ríkið búið að
kaupa um 300 ha., og er vel á veg komið með að rækta
þetta land og byggja á því nýbýli.
Yið samning þessarar ritgerðar hefi jeg notað eftirfarandi
heimildarrit:
Dnnmört.
F. C. Boldsen: Nutidens og Fremtidens Husmandsbrug i Dan-
mark og vore Nabolande. (Kbh. 1916).
Lov (Nr. 323 — 1917): Oprettelse af Husmandsbrug.
— (Nr. 637 — 1919): Afhændelse af de til Præsteembeder
henlagte Jorder til Oprettelse af Hus-
mandsbrug.