Nýja stúdentablaðið - 23.02.1935, Blaðsíða 1
(TCÉTA
STUDZNTABIASQ)
23. f «; 1» 1
1935
GUID UT AF "FEJAGI ROTTÆKRA HASKOIASTUDENTA"
Stúdentaþingið í Brussel
Síðustu dagana í desember var lialdið alþjóðlegt stú-
denta|)ing í Brússel í því skyni, að sameina liina ungu
menntamannakynslóð gegn stríði og l'asisma. Manni
kemur það í svipinn á óvart, að slíkt ])ing skyldi geta
átt sér stað, og til skannns tíma heíði það tæj)lega ver-
ið hugsanlegt, a. m. k. ekki á svo breiðum grundvelli
sem raun varð á. Háskólarnir eru um allan heirn, að
undanteknu Rússlandi, gróðrarstíur þjóðrembings, yfir-
stéttahroka og hverskonar löngu úreltra lífsskoðana og
sjónarmiða. Háskólarnir eiga að ala upp lífvörð liins
ríkjandi þjóðskipulags, eiga að leggja til lierforingja,
uppfinningamenn — fyrst og fremst á sviði hernaðarins
— agitatora og liverskonar áhugamenn innan [tjóðfélags-
ins. Þetta liefir hingað til tekizt með þeim árangri, að
yfirgnæfandi meiri hluti. menntamanna hefir í blindri
auðsveipni gengið í [)að rúm, er valdhafarnir hafa vís-
að þeim til. Menntamennirnir liafa orðið vikaliðugir
þjónar hverskonar afturhalds eða að minnsta kosti and-
leg vesalmenni, sem eru til alls annars líklegri, en að
geta hugsað óbrjálaða hugsun. En nú á tveiin, þrem
síðustu árurn, hefir ómenningar og hernaðarandinn keyrt
svo um þvert bak innan háskólanna, að stúdentunum er
nóg l)oðið, jafnvel þeim, sem engin kynni hafa af rót-
tækum skoðunum. Námsfriðurinn er rofinn gegndarlaust,
það er heimtað af stúdentunum, að þeir gangi á alls-
konar hernaðarnámskeið, læri að fara með gas og varn-
ir gegn því, taki þátt í skotæfingum og reglubundnum
margra stunda bergöngum. Kvenstúdentarnir verða að
ganga á hjúkrunarnámskeið, þveitastí fjárbetl og áróðurs-
starfsemi og læra ýmis karlmannastörf í því skyni að
geta tekið við þeim, þegar til stríðs kemur .Og loks er
það látið viðgangast, að fasistar vaði uppi með óspekt-
um og pyntingum 1 liáskólunum, svo að engum sé þar líft,
nema hinum allra afturlialdssömustu.
Þessar hamfarir hernaðarsinnanna hafa opnað augu
hinna frjálslyndari stúdenta fyrir því, hvert verið er að
teyma þá. Þeir sjá það betur og betur, að þeir hafa
ekkert á vígvöll kapítalistanna að sækja nema dauða og
limlestingu, og nú hafa þeir á þinginu í Brússel tekið
höndum saman við róttækustu menntamennina um að
reyna að tefja fyrir heimsstyrjöldinni, sem yfir vofir,
reyna að láta liana verða hvatamönnum sínum til falls,
snúa henni upp í byltingu, ef hún ekki verður hindruð.
Borgaralegir lýðræðissinnar og friðarvinir (pacefistar)
hafa skij)að sér við hlið fyrri andstæðinga sinna, komm-
únistanna, til þess að vinna á móti hinum hamslausu
eyðileggingaröflum, sem vel eru þess megnug að leggja
heil þjóðlönd í rústir, ef ekki er tekið alvarlega í taum-
ana. Þessi samfylking borgaralegra og marxistiskra
menntamanna er eftirtektarvert tákn þeirrar alvöru, er
nú fyllir hugi manna um allan heim.
Hún sýnir að sá skilningur er að gríjia um sig, að
þróun menningarinnar verður ekki tryggð með fögrum
orðum og hátíðlegum yfirlýsingum einum saman. Það
verður að berjast fyrir benni.
A þinginu voru rædd hagsmunamál stúdenda yfirleitt,
svo sem frjáls aðgangur að háskólunum, skoðanafrelsi
o. fl., og þar var kosin nefnd til að skipuleggja alþjóð-
lega baráttu stúdeuta gegn fasisma og stríði. Merkileg-
asta nýjungin, er fram kom á þinginu, var þó sú áherzla,
sem þar var lögð á samvinnu menntamannanna við al-
þýðuna. Öllum flokkum kom samau, um að mennta-
mennirnir ættu að skij)a sér bróðurlega við lilið alþýð-
unnar, sameinast henni í baráttunni fyrir nýju þjóð-
skipulagi, liagsmunir þeirra og hennar færn algerlega
saman, markið væri bið sama. Þetta er því merkilegra,
að sýknt og lieilagt er alið á því, að menntamenn séu
nokkurskonar andlegur aðall, sem undir engum kring-
umstæðum geti verið þekktur fyrir að setjast á bekk
með alþýðufólki, hversu illa, sem hag þeirra sé komið
í höndum yfirstéttanna, hvernig sem þekkingu þeirra
og uppfinningu er misbeitt í þágu fámennra klíkna.
Stúdentaþingið bendir til þess, að víðtæk stefnubreyt-
ing sé að hefjast meðal frjálslyndari menntamanna,
stefnubreyting, sem getur baft mjög þýðingarmikil á-
brif á hina barðsóttu baráttu milli fasista og verkalýðs.
Stúdentaþingið erþannigí senn gleðilegur vottur um vöxt
andfasistabreifingarinnar og öflug livatning til mennta-
manna og alþýðu um að ganga saman í eina fylkingu í
baráttunni fyrir larsælli framtíð.
v