Hlín - 01.01.1922, Blaðsíða 69
H'lln
67
Islenskir skór og bæting þeirra.
Vonandi iíða ekki mörg ár enn, þar til við getum
gengið á al-íslenskum skóm, bæði hversdagslega og á
helgum, inni og úti. Jeg á við, að úr okkar íslensku
skinnum og húðum verði unnið alt verkefni, jafnt í
laglega útlítandi innanhússskó sem öll gangstígvje! með
þynnri eða þykkri sólum.
Ingólfur alþingismaður í Fjósatungu sýndi mjer á dög-
unum hanska úr íslensku dilkaskinni. Kunningi hans,
Porsteinn Davíðsson, sem vinnur á sútunarverksmiðju
nálægt New-York, hafði sent honum hanskana. Jeg dáð-
ist að, hve hanskarnir voru laglegir, og skinnið traust og
útlits-líkast dog-skinni (það er skinn af stórum hund-
um, sem algengt er að notað sje í hanska). Petta styrkti
mig enn betur í trúnni á islensk skinn og skinnagerð.
Kona hjér í bænum hefir gert laglega íslenska skó
með gamla laginu úr rauðbrúnu sútuðu sauðskinni frá
sútunarverksmiðju Haraldar Guðnasonar. Skór þessir hafa
verið til sölu hjer og kosta kr 3.00. — Þessir skór eru
að vísu snotrari en gömlu skórnir okkar, og þess vegna
keypti jeg mjer þá til reynslu. En þar eð þeir entust
illa og ljókkuðu fljótt, fjekk jeg mjer ekki nýja af því
tægi, enda fanst mjer þeir ekki samsvara verðinu að
gæðum. —
Jeg hef síðan horfið aftur að gömlu sauðskinnsskónum
til inninotkunar, því ætíð hefi jeg kunnað vel við þá á
fótunum. Hinsvegar hefir Haraldur sútunarmeistari lofað
mjer því að gera nýjar tilraunir til að súta skinn,' er
svari betur tilgangi en rauðbrúna skinnið hans gerði.
Matthea systir mín hefir í mörg ár gert börnum okkar
systkina mjög hentuga og snotra skó með svipuðu lagi
5*