Hlín - 01.01.1933, Page 11
Hlin
9
»Hugheilar kveðjur og þakkir, söknum næi^veru
ykkar«.
Sambandsfundur Norðlenskra kvenna.
Formaöur talaði einnig nokkur orð um stofnanda
og heiðursfjelaga sambandsins, Halldóru Bjarnadótt-
ur og lýsti hennar ósjerplægna og óeigingjarna starfi
í þarfir kvenfjelagsskaparins og bað fundarkonur að
standa upp í virðingarskyni við hana, og var það gert.
Garðyrkjiomál. Framsögu hafði Ingibjörg Eiríks-
dóttir. — Sagði hún garðyrkjuna vera sitt áhugamál,
en álítur hana of stutt á veg komna. Talaði hún um
hvað nauðsynlegt væri að auka garðrækt sem mest,
þar sem hinar mörgu káltegundir og matjurtir hefðu
svo mikil bætiefni.
Einnig mintist hún á, að S. N. K. hefði nú starf-
andi garðyrkjukonu í Eyjafjarðarsýslu til þess að
leiðbeina fólki í garðyrkju. Var það álit hennar að S.
N. K. ætti að hafa garðyrkjukonu starfandi alt sum-
arið, víðsvegar um sambahdssvæðið.
Ýmsar lconur tóku til máls og urðu miklar umræð-
ur um málið.
Svohljóðandi till. kom frá Ingibjörgu Eiríksdóttur:
»Fundurinn telur brýna þörf fyrir starfandi garð-
yrkjukonu á sambandssvæðinu og felur stjórninni að
vinna að framförum garðyrkjunnar eftir megní«.
Tillagan samþykt.
Beiðni kom frá Kvenfjelagi Húsavíkur um styrk
til plöntukaupa. Fundurinn samþykti að veita því kr.
50.00.
Lesið upp brjef frá Skógræktarfjelagi Islands.
Þá var kosinn gjaldkeri Sólveig Pjetursdóttir, Völl-
um í Svarfaðardal, í stað Þóru Stefánsdóttur, sem
gekk úr stjórn. Varagjaldkeri Jóhanna Þór, Akureyri.
Stjórnina skipa þá:
Ingibjörg Eiríksdóttir, Akureyri (formaður), Sól-