Hlín - 01.01.1933, Blaðsíða 14
12
Hlin
og skiftast konurnar um að hafa fundina heima hjá
sjer, oftast eru tvær konur í fjelagi um hvern fund.
Á eftir fundunum skemta konur sjer við ýmsan gieð-
skap og kaffidrykkju.
Til að afla fjelaginu fjár, greiöir hver kona kr. 2.00
í árstillag, en auk þess var fyrstu árin keypt efni til
þess að vinna úr á fundunum, en síðar var því breytt
og láta fjelagskonur nú einn eða tvo heimaunna muni
til fjelagsins á hverju vori, og eru þeir munir svo,
ásamt öðrum gefnum eða keyptum munum, hafðir á
hlutaveltu, bögla-uppboði eða til útsölu.
Um hver jól hefur fjelagið ókeypis jólatrjesskemt-
ún og veitingar fyrir unga sem gamla, þá skemtun
sækja. venjulega um 300 manns. Einnig úthlutar fje-
lagið fyrir jólin árlega kr. 200.00 til fátæklinga og
stundum auk þess nokkru af fatnaði.
Veturinn 1919 var byrjað á að safna í sjúkrasam-
lagssjóð, og fjársöfnun haldið áfram þar til veturinn
1931, að sjóðurinn var orðinn kr. 5000.00, var þá
stofnað sjúkrasamlag fyrir hreppinn.
Til hjálpar sjúkum í hreppnum hefur fjelagið gefið
rúmar 1100 krónur. Til spítalans á Eskifirði kr.
100.00. Til Landsspítalans kr. 200.00 og til Hallorms-
staðaskólans kr. 150.00.
Á tíu ára afmæli^fjelagsins lögðu konur kr. 500.00
í húsbyggingarsjóð fyrir fjelagið, og er sá sjóður nú
rúmar 600 krónur. Einnig á fjelagið fjóra 25 krónu
hluti í Hallveigarstöðum.
Árið 1930 var fjelaginu gefin landspilda og 70 trjá-
og blómaplöntur, síðan girti fjelagið reitinn með
vandaðri girðingu — bárujárn á norður- og vestur-
hlið, en refanet á suður- og austurhlið — fjekk svo
garðyrkjukonu til þess að útbúa garðinn með fje-
lagskonum og þykir hann hin mesta prýði í þorpinu.
Hirðingu garðsins skifta fjelagskonur með sjer þann-