Hlín - 01.01.1933, Side 16
14
Mín
skemtun og var ágóðinn kr. 224.00, sem lagðar voru í
sjerstakan sjóð, sem varið skal til nauðsynlegra inn-
kaupa, og voru þrjár konur kosnar í nefnd til að sjá
um það.
Árið 1919 gaf fjelagið kr. 200.00 til Landsspítalans.
Barnaskólanum hjer hefir fjelagið gefið kr. 328.00
til áhaldakaupa.
Til endurbóta á grafreit safnaðarins hafa verið gefn-
ar kr. 100.00, ennfremur hefir verið ákveðið að leggja
meira til hans mjög bráðlega.
Nokkur námsskeið hafa verið styrkt hjer, svo sem
hjúkrunar,-handavinnu- og síldarmatreiðslunámsskeið.
Lúðrasveitinni hjer hefir fjelagið gefið kr. 100.00.
Til styrktar sjúkum og íatækum hefir fjelagið varið
síðan 1922 um kr. 6100.00.
Á síðari árum hefir fjelagið kostað til jólatrjesskemt-
ana alt að kr. 200.00 á ári, og hafa fjelagskonur einnig
gefið mikið til þeirra. Áður hafði fjelagið forgöngu
fyrir slíkum skemtunum, en safnaði fje til þeirra utan
fjelagsins, og greiddi það sem upp á vantaði úr fjelags-
sjóði. Þessar skemtanir eru vitanlega gerðar. eingöngu
fyrir börn og gamalmenni, en eru líka mjög sóttar af
öðrum, svo að þetta er nú orðin fjölmennasta og vin-
sælasta skemtisamkoman í kauptúninu á árinu.
Til að afla fjelaginu fjár, hafa verið haldnar skemti-
samkomur, hlutaveltur, böglauppboð, sýndir sjónleikir,
og útsölur hafðar á handavinnu, sem fjelagskonur hafa
unnið fyrir fjelagið.
Eignir f jelagsins voru í árslok 1931:
1. Lausafje virt á.................... kr. 650.00
2. Inneign í sparisjóði ............. . . — 1150.36
Samtals kr. 1800.36
Fjelagskonur eru nú 44, og koma saman tvisvar í