Hlín - 01.01.1933, Side 21
Hlin
19
3. gr. — Höfuöstól sjóðsins má aldrei skerða, held-
ur ávaxta á þann hátt, er hér greinir:
1. Meö tveggja króna árlegu gjaldi frá hverjum með-
lim kvenfjelagsins.
2. Með gjöfum er sjerstaklega kynnu að vera gefnar
í þessu skyni, og
3. Meö öllum árlegum sparisjóðsvöxtum sjóðsins.
4. gr. — Þegar sjöðurinn er orðinn fullar 6000.00
'kr. tekur hann til starfa, og má þá verja til þess ait
að % ársyaxta sjóðsins, auk gjafa og árstillaga hvers
meðlims kvenfjelagsins, en }/4 vaxta leggist árlega við
höfuðstólinn.
5. gr. — í stjórn sjóðsins skulu vera: Sóknarprest-
urinn og hreppstjórinn í ólafsfirði og 3 konur eða
karlai',' sem kvenfjelagið kýs. Leggist kvenfjeíagið
niður, skal hreppsnefndin í ólafsfirði kjósa þessa 3
meðstjórnendur.
6. gr. — Þegar sjpðurinn er orðinn fullar 4000.00
kr., er kvenfjelagið laust við þá skyldu að leggja til
árgjöld,, nema eftir eigin ákvorðun.
7. gr. — Á skipulagsskrá þessari skal beiðast kon-
unglegrar staðfestingar.
Hjúkrunarfélagið »Hjálp«, Patreksfirði.
Haustiö 1928 hjelt hjúkrunarkona Kristín Thor-
oddsen hjúkrunarnámsskeiö hjer, að tilhlutun Rauða-
krossfjelagsins. Tóku þátt í námsskeiðinu 25 konur,
giftar og ógiftar, og að námsskeiöinu loknu mynduðu
þæi' með sjer fjelagsskap, í þeim tilgangi að hlynna
aö heimilum, sem veikindi væru á. Var í fyrstunni
meiningin að reyna að fá lærða hjúkrunarkonu, en
þar sem fjelagiö hafði ekki efni á að halda svo dýra
hjálp, og hinsvegar meiri þörf á mörgum heimilum
2*