Hlín - 01.01.1933, Page 31
Hlm
29
konur til að mynda með sjer fjelagsskap, í þeim til-
gangi að vinna fyrir áhugamál sín og meðal annars
að stofnun húsmæðraskóla.
Almennur kvennafundur var haldinn á Ljósavatni
7. júní 1905. Á fundi þessum var Kvenfjelag Suður-
Þingeyinga stofnað. Var aðal-tilgangur og markmið
fjelagsskaparins að vinna að stofnun húsmæðraskóla
í sveit á austanveröu Norðurlandi, helst í Þingeyjar-
sýslu. Ennfremur að efla menningu kvenna yfirleitt
og styöja allt það, er eflt gæti sveitaheimilin og auk-
iö gildi þeirra.
Fjelögin hafa frá upphafi unnið að endurreisn
heimilisiðnaðar og að garðrækt. Hefir starf fjelag-
anna á þeim sviðum borið mikinn árangur.
Hjartfólgnasta mál kvennanna og mesta áhugamál
þeirra var altaf skólamáliö. En lengi vel báru mála-
leitanir þeirra við þing og stjórn, í þá átt að stofna
skóla, engan árangur.
Þegar það var samþykt að stofna húsmæðraskóla
fyrir Norðurland, hugðu þingeyskar konur að í raun
og veru væri þeirra skólamáli lokið, og lokið á þann
hátt, er þær mættu vel við una, svo framarlega sem
skólinn yrði alls ekki settur í kaupstað. En af þess-
ari skólastofnun varð ekkert, eins og kunnugt er.
Alþýðuskóli Þingeyinga var stofnaöur árið 1925.
Ýmsar konur gerðu sjer vonir um, að húsmæði'akenslu
yrði kornið á viö skólann, eða að við hann stai’faði
húsmæðradeild, eins og konur orðuðu það. En vegna
fjárhagsörðugleika var ekki unt að gera Alþýðuskól-
ann svo úr garði, að húsmæörakenslu yrði við komið.
Árið 1926 var því hi'eyft í einu af deildarblöðum
Kv. S.-Þing., að líklegasta og heppilegasta leiðin til
að stofna skóla hjer í sýslu mundi sú að byggja hann
á Laugum. Hann átti ekki að vera stór, en sniðinn
eftir fyrirmyndar sveitaheimili. Nágrennið við Al-