Hlín - 01.01.1933, Side 127
min
125
Þeir höfðu legið við upp á heiði við silungsveiði.
Óli gegndi ekki fyrirmælum afa við veiðiskapinn, en fór að
öllu eftir eigin geðþótta. Það endaði að sjálfsögðu með því að
hann steyptist á höfuðið í vatnið. Afi vissi að vatnið var
grunt og' skamt til lands, svo hann gaf ekkert um að bjarga,
ætlaði að lofa stráksa að hjálpa sjer sjálfur, en þetta atferli
ait var svo bráðhlægilegt að afi skellihló að öllu saman og
Óli gat ekki að sjer gert að hlæja lika- Hann staulaðist I land
og sagði um leið: »Óttalegur asni get jeg verið!« »Já, það hef-
ur mjer einmitt altaf fundist líka«, sagði afi hlæjandi. Hann
hafði ekki ráðrum til að segja meira, því Óli stökk upp um
hálsinn á honum, rennandi eins og hann var, og vafði gamla.
manninn að sjer.
Báðir hlógu þeir og' grjetu á víxl, það héfði mátt halda að
þeir væru ekki almennilega með sjálfum sjer, en þaö voru þeir
nú einmitt.
Kærleikurinn hafði sigrað.
Sitt af hverju.
Af Norðurlandi skrifar bóndi, sem talsvert hefur átt við sút-
un skinna undanfarandi ár. (Iiann hefur nú, ásamt sveitung-
um sínum, pantað mikið af álúni til sútunar í haust). —
Jeg hef í öllum aðalatriðum farið eftir fyrirsögn Stóruvalla-
hjóna, sem getið var í »Hlín« fyrir nokkrum árum. — Jeg vil
einungis bæta þessu við: 1) Það er ekkert aðalatriði, að skinn-
in sjeu alveg ný, þegar sútað er. Þess verður aðeins að gæta,
að þa.u harðni ekki og að sjálfsögðu mega þau ekki úldna. Sjeu
þau geymd, verður að salta þau vandlega. 2) Til þess að skinn-
in verði áferðarfalleg verður að gxta <dls hreinlætis, strang-
lega. Vatn það, sem þvegið er úr, verður að vera vel hreint og
algarlega laust við rauða. 3) Sje kalk notað til þess að ná ull-
inni af skinnunum, má ulls ekki láta skinnin í álúnið fyr en
hætt er með öllu að freyða í vatninu, þegar skinnin eru þvegin.
Iíalkið geng'ur í samband við fituna í skinninu og myndar sápu,
sem nauðsynlegt er að ná úr. Hygg jeg að sápan verji skinnin
fyrir áhrifum álúnsins, meðan hún er fyrir hendi.
Skinn, sem við höfum sútað á þennan hátt höfum við notnð