Hlín - 01.01.1935, Blaðsíða 44
42
HUn
matan er mjög áburðarfrek planta, en jeg hef aldrei
fengið skýrari sannanir fyrir ágæti þessa áburðar en
nú,, því útlit og vaxtarmagn þessara plantna er hið
ákjósanlegasta.
Safnhauga má gera úr allskonar efnum: Þara, ösku,
mold, mómylsnu, rekjum úr heyi, fiskúrgangí,, jurta-
leifum. — Safnhaugum á að halda rökum, og er á-
gætt að hella yfir þá skólpi og þvagi. Hver jarðeig-
andi þarf að eiga sjer safnhaug og umstinga hann
3—4 sinnum á ári. — Til þess að herða á efnabreyt-
ingunni er nauðsynlegt að bæta áburðarkalki i safn-
haugana, nema þari sje notaður, sem inniheldur kalk.
— Gott er að þekja safnhauga með torfristu á haustin.
Emst Fresenms.
íslensk framlelðsla. J
»HIín« hefur ákvcðið að birta við og við frjettir af
íslensku framtaki og framleiðslu, sjerstaklega því sem
lítið lætur yfir sjer, en þykir þó þess vert að því sje
gaumur gefinn. — Oft heyrir maður því svarað til,
þegar skýrt er frá einhverri íslenskri framleiðslu:
»Já, ekki vissi jeg að það var farið að gera þetta á
Islandik — Margir urðu hissa, þegar þeir sáu, hve
margt íslenskt var sýnt á fyrstu íslensku vikunni hjer
á landi. En margt er þó komið síðan, sem betur fer,
svo að segja mánaðarlega kemur eitthvað nýtt á mark-
aðinn, og er það vel farið, að menn reyna að auka at-
vinnuna með innlendri framleiðslu. — Þó maður sje