Hlín - 01.01.1935, Blaðsíða 66
fflln
64
— Kölbrún. — Steingerður. •— Sævar aö sölum. •—
Jeg kýs mjer húmið hljóða — og Mamma ætlar að
sofna, eftir Davíð, svo jeg nefni eitthvað, og ótal
margt fleira, bæðí innlent og útlent.
Margar ungar stúlkur þrá mjög að læra á hljóð-
færi og hafa sæmilega söngrödd,, sumar ágæta, og er
það sjerstaklega hentugt með gítarundirspilí.
Gítarinn er sannarlega auðugur að hljómfegurð og
iist, ef vel er með hann farið, og getur hver sem víll
sannfærst um það, sem heyrir hina yndislegu gítar-
hljómleika, sem stöku sinnum eru fluttir í útvarpinu
— að ógleymdum ómum Hawai-gítarsins, sem er ein
hin fegursta »músík« sem jeg heyri.
Að endingu vildi jeg óska þess, að þessi fáu orð
vekti löngun hjá einhverjum til að skygnast inn í un-
aðsheima gítarsins. Hann verður áreiðanlega ekki
fynr vonbrigðum.*
S. Á.
* Dr. Sigfús Blöndal, Kaupmannaliöfn, hefur skrifað skemtl-
lega og fróðlega ritgerð um gítarspil í Ársrit Fræðafjelags-
ins 1927—28. Hann iðkar sjálfur mikið gítarspil og ann þvi
mjög, á marga gítara og kann á þeim góð skil. Það væri
óskandi, að dr. Sigfús ljeti verða af því að gefa út gítarlög
og söngva, því hann er allra manna fróðastur í þeim efnum
og kann ógrynni af lögum og textum, sem hæfa því hljóð-
færi,
Rit8tj.