Sumargjöf - 01.01.1907, Page 73
Sumargjöf
69
Lítið á framfarirnar hjer á landi, hversu geipi-
miklar þær hafa orðið undanfarin 30 ár, síðan verstu
einveldishöftin slitnuðu.
Einveldishöftin eru ekki öll slitnuð enn af þjóð-
inni.
Nú erum við kjósendur eins konar einvaldsherr-
ar iíir öllum þeim Qölda landsmanna, karla og
kvenna, sem ekki hafa kosningarrjett.
Fleigjum því valdi.
Gerum þjóðina alfrjálsa inn á við.
Það getum við, og það gerum við, ef við leiðum
í lög almennan kosningarrjett.
Við Reikvíkingar gerum sjálfum oss sóma og
öllu landinu gagn, ef við segjum til vegar í þessu
máli.
Það higg jeg nú að öllum sje ljóst.
Og þess vegna vil jeg ekki orðlengja þetta frek-
ar. Jeg veit að okkur er öllum jafnant um sóma
höfuðstaðarins og gagn ættjarðarinnar.
Yið fossinn.
Við komum hjer ennþá, sem erum á ferð,
fyrst enn er ei streingur þinn skorinn,
nje okið þitt telgt eða talið þitt verð
og tjaran í kollinn þinn borin.