Dvöl - 01.09.1935, Qupperneq 6

Dvöl - 01.09.1935, Qupperneq 6
6 D V 1. september 1935 anda tók boði höfðingjans og lofaði að gerast kona hans með hessu skilyrði. Hún gat þó komið honum í skilning um það, að í sínu landi mætti giftingin ekki fara fram fyrr en mánuði eftir trúlofunina eða ákvörðunina, og laffgju til þess trúarlegar ástæð- ur. Ennfremur sagði hún honum, að ef hann snerti eitt hár á höfði Don Sebastians, myndi hún drýgja sjálfsmorð samstundis. Siripa bað hana ganga til kofa síns og lofaði að gefa manni hennar líf, en lofaði því jafn- framf, að ef hann kæmist að því að þau tvö töluðust við framar, skyldi hann drepa þau bæði nxeð þeim hræðilegustu pyntingum, sem fjandinn sjálfur hefir kennt börnum sínum, Indíánum. Don Sebastian var færður úr fötum sínum og málaður allur á Indíána vísu. Hann var settur til að vinna öll verstu og smánar- legustu verkin, en allt þoldi hann með auðmýkt, af því að hann fékk að vera nálægt konunni, sem liann elskaði og gat séð hana á- lengdar stöku sinnum. Þér, sem hafið elskað, getið ef- laust gizkað á það — eins og ég get — að áður en vika var liðin, höfðu Don Sebastian og frú Mir- anda fundið ráð til þess að hitt- ast, þrátt fyrir hina ströngu gæzlu. Þau hittust, fullvissuðu hvort annað um ást sína, og töl- uðu jafnvel um möguleika til að strjúka. Ö L Yngsta kona Indíánahöfðingj- ans, sem hafði verið yndi hans og eftirlæti, unz Miranda kom, sýndi hinni spönsku konu óvirð- ingu í orðum og gerði henni yfir- leitt allt illt, sem hún gat. Dag nokkurn, þegar hún hótaði öllu i'lu, sagði Miranda við hana: — Heldurðu kannske, að mig Jangi minna til að losna við mann þinn, Indíánahöfðingjann, en þig langar til að losna við mig? Svo sýndi hún stúlkunni fram á, að gleymt væri hvert gengið, og ef hún aðeins gæti komizt í burtu, myndi Indíánahöfðinginn sm'ia sér aftur að hinni fyrrverandi uppáhaldskonu sinni. Að lokum bauðst Indíánastúlkan til að hjálpa Miranda og manni hennar til að flýja. Fyrst kom! hún þvi svo fyrir, að Don Sebastian gat heimsótt lvonu sína í kofann kvöld eitt, svo að þau gætu komið sér saman um tilhögun flóttans. Hve dásamleg stund þessi nótt þefir verið fyrir elskendurna, geta einungis þeir ímyndað sér, sem sjálfir elska. Þess vegna ætla ég ekki að reyna að lýsa því fyrir yður, heiðruðu frúr. En víst er það, að þegar nóttin var á enda og dagur rann, sátu þau Don Se- bastian og frú Miranda enn sam- an og töluðust við, eins og þau liefðu nú fyrst séð hvort annað og myndu aldrei framar sjást. — En nú vildi svo til, að Indíána- stúlkan unga, sem hafði hjálpað til að lvoma þessu í kring, reyndi

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.