Dvöl - 01.11.1937, Blaðsíða 36
362
D V ö L
Albert Bonniers förlag 100 ára
Eitt hið risavaxnasta og merki-
legasta bókaforlag Norðurlanda,
Albert Bonniers förlag í Stokk-
hólmi, hélt hátíðlegt aldarafmæli
sitt 30. október síðastliðinn. Pessa
merkisatburðar í bókmenntaheimi
Norðurlanda hefir verið næstá lít-
ið minnzt hér á landi, og mættu
J)ó íslendingar, þessi mjög rómaða
bókaþjóð, vera þess minnugir, að
Svíar liafa lagt til heimsbókmennt-
anna margar dýrmætustu perlur
þeirra. En það leikur ekki á tveim
tungum, að Albert Bonniérs för-
lag hefir bjargað frá eilífri glötun
verulegum hluta af þeim fegurstu
skáldverkum, sem skrifuð hafa
verið á sænska tungu síðan
snemma á dögum Strindbergs.
—o—
Albert Bonnier fæddist í Kaup-
mannahöfn 21. október 1820. Fað-
Lr hans, Gerhard Bonnier, sem var
þýzkur gyðingur, hafði setzt að í
Kbh. laust eftir aldamótin og rak
þar bókaverzlun í sambandi við
utlánsbókasafn, auk þess sem
hann fékkst nokkuð við bókaút-
gáfu. Þrír af sonum Gerhard
Bonniers urðu velþekktir bókaút-
gefendur í Svíþjóð, en þó ávann
Albert Bonnier sér varanlegastan
hróður sem framúrskarandi at-
hafnamikill og vandlátur forleggj-
ari.
Pað fyrsta, sem Albert Bonnier
gaf út, var lítill bæklingur, þýdd-
ur úr frönsku, með titlinum: ,,Be-
vis att Napoleon aldrig har ex-
isterat." (Sönnunin fyrir því, að
N. hefir aldrei verið til). Bækling-
urinn rann út eins og nærri má
geta og var prentaður tvisvar. Pá
var Albert 17 ára gamall og hafði
starfað í tvö ár við bókaverzlun
Adolfs bróður síns í Stokkhólmi.
Starfaði hann hjá bróður sínum
frá 1835—‘65, að undanskildum
tveim árum (1840—‘42), en þá var
hann í Leipzig, Wien og Buda-
pest, til þess að fullkomna sig í
starfsgrein sinni.
Eftir að hann kom aftur heim,
tók hann fyrir alvöru að leggja
stund á bókaútgáfu, jafnhliða
starfinu við fyrirtæki bróður síns.
Pó að útgáfustarfsemi hans væri
ekki mikil að vöxtum fyrst í stað,
þá varð hann þó brátt þekktur
fyrir frábæra vandvirkni í bóka-
vali. Framan af gaf hann einkum
út þýðingar erlendra úrvalsskáld-
rita og fræðibóka, en einnig blöð
og tímarit af ýmsu tagi.
Árið 1845 byrjuðu „Fáltskárns
beráttelser" (Sögur herlæknisins)
eftir Zachris Topelius að koma út
á forlagi Albert Bonniers, og mun
sú útgáfa hafa haft geysimikla
þýðingu fyrir eflingu forlagsins.
Á næstu árum gaf hann út verk
margra þekktustu sænskra Ijóð-
skálda og skáldsagnahöfunda, sem