Dvöl - 01.09.1944, Side 50

Dvöl - 01.09.1944, Side 50
192 D VÖL Sesselja Gftlr Signrð Elkjær Leifur Haraldason þýddi Sýslumaðurinn á Bygghólmi lét varpa Sesselju Jensdóttur í hunda- smuguna undir portturninum. Það var óhugnanleg vistarvera, en þó rétt mátuleg handa sveitastúlku, sem ráðið hafði barni sínu bana. Sagginn rann niður óhrjálega steinveggina. Frá gólfinu lagði megnan daun af mygluðum hálmi og öðru enn þá verra. Sesselja hnipraði sig saman í einu dimmasta horninu. Þar lá hún með úfið hárið, eins og stórt, loð- ið dýr, kjökrandi og kveinandi, þótt -ekkert væri að henni. „Hún er mesti fjörkálfur,“ sagði fangavörðurinn. „Hún etur allt, sem henni er fært, leifir aldrei svo miklu sem brauðmola, og hún sleik- ir fatið eins og hundur.“ Verðinum hafði líka komið til hugar að færa henni fang af hrein- um hálmi. Hann var ekki neitt illmenni. En hvernig launaði hún svo góðvild hans! Þegar hann vildi prófa þurra fletið með henni, klór- aði hún bæði og beit, og varnaði honum þannig að fá vilja sínum framlengt. Og var hann þó vel að manni. „Þá geturðu hvílt, eins og þú hefur um þig búið, Sesselja Jens- dóttir,“ mælti hánn réttilega og fangaði hálminn aftur. Sesselja hvæsti, þar til hann hvarf með hálmfangið sitt. Svo ódæl var hún og skammsýn, þó að þegar væri búið að brýna böðulsöxina fyrir hálsinn á henni, að hún kenndi ekki neinnar löng- unar til þess að sykra þá fáu, súru daga, sem hún átti eftir! Sóknarpresturinn í Krossanesi, Páll Rytter, gat ekki heldur kom- ið neinu tauti við Sesselju. Hann vildi snúa henni til afturhvarfs og iðrunar, áður en það var um sein- an. En öll hans fyrirhöfn virtist unnin fyrir gýg. Hann var þó góð- menni og hafði mikla æfingu í að snúa fólki til afturhvarfs. Hann talaði af svo mikilli einlægni, að tárin runnu niður grátt skeggið. Stúlkan starði aðeins á hann stór- um augum, eins og hún hugsaði: Yfir hverju er þessi göfuglyndi öldungur að gráta? Hann hefur þó enga ástæðu til þess að vera sorgbitinn! Prestinum tókst ekki að toga út úr henni aukatekið orð, jafnvel þótt hann spyrði hana blátt áfram, hvort hún vildi heldur fara upp

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.