Dvöl - 01.09.1944, Blaðsíða 74

Dvöl - 01.09.1944, Blaðsíða 74
216 DVÖL í Lesbók Morgunblaðsins og kváðu hafa fært höfundi nokkrar vinsældir að hönd- um. Að minnsta kosti þrjár þessara greina hafa menningarlegt gildi. Fjalla þær um fyrsta kvikmyndaleiðangur á íslandi, fyrstu hringferð Ferðafélagsins og fyrsta farþegaflugið milli Reykjavíkur og Ak- ureyrar. Árna lætur einkum vel að rita um ferðalög og söguleg efni. En að von- um bera greinar þessar nokkurt svipmót hver af annarri, og þótt stíll Árna sé lipur og frásögnin þekkileg, bera grein- arnar þess nokkurt vitni, að þær eru til komnar við hin erfiðu vinnuskilyrði ís- lenzkra blaðamanna, sem fæstir geta gert sér í hugarlund, er ekki þekkja af eigin raun. „Landið er fagurt og frítt“, er kannske sú af bókum þeim, sem út hafa komið undanfarna mánuði, sem aug- lýst hefur verið af mestum dugn- aði og kappi. Meðal annars er þess ó- spart látið getið, að bók þessi sé hin eigu- legasta fyrir hina ungu kynslóð landsins. Þetta er að því leyti satt og rétt, að bókin fjallar um efni, sem er ungu fólki girni- legt til fróðleiks, og mörgum kann hún að opna útsýn yfir ný svið, sem öllum er vissulega hollt að kynnast. En einn er sá galli á þessari bók, sem ber að víta, sér í lagi vegna þess, hve hún er mjög boðin æsku landsins. Það eru margs konar ambögur og hvimleiðar prentvillur hennar. Ekki skal hér neitt um það fullyrt, hvort sækja beri höfund einan til saka í þessu efni — en þess getið, að margur rithöf- updur verður að gjalda hroðvirknislegs prófarkalesturs og ómennilegrar bókagerð- ar. Málvillur eru allmargar í bókinni og stafsetningarvillur slíkar, að firnum sætir. Verst er þó kajnnske það, að tilvitnanir í þjóðkunn kvæði hgfa tekizt þannig, að stafsetning orðanna hefur víða skekkzt og brjálazt — eins og erindið úr kvæði Matthíasar um Dettifoss ber sorglegast vitni. En smíöisgallar sem þessir eru vissu- lega slæm lýti á ekki lakari efnivið en bókin annars er. Sé Árna Óla hér ekki um að kenna, hefði vissulega ekki verið að ástæðulausu, þótt hann hefði beðið guö að vernda sig gegn vinum sínum — setjaranum, prófarkalesaranum og útgef- andanum. H. S. Pósturinn liringir alltaf tvisvar, eftir James M. Cains. Útg. Pálmi H. Jónsson, Akureyri. íslenzkir útgefendur og þýðendur hafa lagt allmikla rækt við amerískar bók- menntir hin síðari ár. Ber því að fagna, því að þar er vissulega um auðugan garð að gresja. Hinu er ekki að neita, að hinar amerísku bókmenntir eru næsta misjafn- ar að gæðum, enda þótt hver grein þeirra kunni að hafa til síns ágætis nokkuð. „Pósturinn hringir alltaf tvisvar" verður engan veginn talin merkileg bók, en hefur þó sitt gildi. Hún er gott dæmi um þá miklu tækni, sem einkennir bækur ýmissa rithöfunda Vesturheims. Frásögnin er hröö og litrík. Stíllinn er hnitmiðaður og markviss. Þess ber og að geta, að sálar- lífslýsingar bókarinnar eru óvenjulega góðar, þegar um er að ræða bók þessarar tegundar. Og þeir, sem hafa eitthvert yndi af bókum, er fjalla um „ástir, villtar á- stríður, fjörráð, morð og afleiðingar þess,“ ganga áreiðanlega ekki bónleiðir til búðar James M. Cains. Bók þessi hefur hlotið slíkar vinsældir í löndum Engilsaxa, að einsdæmi mega heita. Raunar þurfa vinsældir bóka ekki ávallt að vera einhlítur mælikvarði á gildi þeirra — öðru nær. Þeim, sem þessar línur ritar, dylst ekki, að aðrar bókmenntir merkari muni Vesturheimur hafa upp á að bjóða en þær, sem þessi bók verður til tal- in. En „Pósturinn hringir alltaf tvisvar" er ágætt dæmi um einn þátt amerískra nú- tímabókmenntá, og kannske er þetta sá þáttur þeirra, sem almenningur allra landa kann bezt að meta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.