Dvöl - 01.09.1944, Page 76

Dvöl - 01.09.1944, Page 76
218 DVÖL því að Þórir Bergsson er sjálfstæður og öruggur höfundur. A. K. Fjalliö Everest eftir Sir Prancis Younghusband. Skúli Skúlason þýddi. Snælandsútgáfan h.f. Fátt lestrarefni er jafn vinsælt og ferða- sögur, og þó sérstaklega frásagnir um pólferðir, landkönnun og fjallgöngur. Þetta er raunar eðlilegt, því að maðurinn elur stöðugt þrá eftir að sigra hið tor- sótta og kanna ókunna stigu. íslendingar eru engin undantekning frá þessari reglu, og kunna flestir vel að meta ferðabækur, enda kemur fjöldi slíkra bóka hér út á ári hverju. Snælandsútgáfan er ungt útgáfufyrir- tæki, sem þegar hefur lagt myndarlegan skerf til ferðabókasafnsins á þessu ári. í vor gaf hún út bók, sem nefndist „Um ókunna stigu.“ Voru það 30 ferðasögur valdar, og var bókin frábærlega skemmti- leg og fræðandi og prýdd fjölda vandaðra mynda. Jón Eyþórsson og Pálmi Hannes- son þýddu bókina, en Vilhjálmur Stefáns- son útvegaöi leyfi til þýðingarinnar. Nú í haust sendir Snælandsútgáfan frá sér aðra bók af sama toga, og heitir hún „Fjalliö Everest" og er eftir Sir Francis Younghusband. Sá er Englendingur og hefur ritað margt ágætra bóka um ferða- lög og flest annað milli himins og jarðar. Er hann þaulkunnugur i Indlandi og Himalayufjöllum. Bókin er yfirlit um leiðangra í fjallið Everest og ýmsa aðra helztu tinda Himalayu. Er það mjög greinargott yfirlit og gefur lesandanum skýra mynd af viðleitni mannanna til þess að komast á hæsta tind hnattarins, og hver orðinn er árangur þeirrar við- leitni. En bókin er meira en góð ferða- saga þessara fjallaleiðangra. Hún túlkar líka á áhrifamikinn hátt gildi þessarar viðleitni, sem er ekki aðeins fólgið í því, að ná því setta og sýnilega takmarki, að komast á tind fjallsins, sem fengizt er við, heldur einnig og miklu fremur í þeim þroska og lífsviðhorfum, sem mað- urinn öðlast við að þreyta glímuna við fjöllin og lifa i fegurð þeirra. Bókin er rituð af viturleik og huggöfgi — það dylst engum, sem les. Hún er óður fjalla- mannsins . Skúli Skúlason hefur íslenzkaö bókina, og er mál hennar lipurt og víðast lífi þrungið. Bókin er í smekklegum og stílhreinum búningi, pg myndir hennar vandaðar. Sá frágangur er og á öðrum bókum Snæ- landsútgáfunnar, og virðist þar um ráða góður smekkur og vandvirkni. Munu les- endur virða það að verðleikum nú á „þessum síðustu og verstu tímum". Snælandsútgáfan hefur og nýgefið út barnabókina Stein Bollason. Er það gam- alt og vinsælt ævintýr, skreytt myndum eftir Tryggva Magnússon. Smekkleg bók. Þá mun og rétt ókomið frá sömu útgáfu Ævisaga Winston Churchills, rituð af honum sjálfum, og mun marga fýsa að lesa hana. A. K. Meðal manna og dýra. Sögur eftir Steindór Sigurðsson, gefnar út af Pálma H. Jónssyni á Akureyri síðastliðið ár. Þetta eru sex sögur. Allar eru þær meira og minna með handbrögðum hag- leiksmanns, en mjög misjafnlega vel telgdar og úr misgóðu efni. Fyrsta — og næstsnjallasta — sagan heitir „Hæg er leið.“ Hún er saga um ungan mann, sem fer undan brekkunni. Átakanleg harmsaga. Saga, sem er svo sterklega sögð, að hún ætti að geta stöðv- að einhvern á undanhaldi, ef annars er hægt að gera það með orðum. Unga fólk- ið ætti að lesa þessa sögu til þess að auka ótta sinn við hina „hægu leið'," sem sennilega hefur aldrei í lífi íslenzkra

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.