Alþýðublaðið - 25.07.1923, Side 1

Alþýðublaðið - 25.07.1923, Side 1
Crefiö út af Alþýfluflokknam *923 Miðvikudaginn 25. júM. 167. tölublað. Hvar er ríkislánið? M Landssímanum 24. júlí 1923. A nýju línunni Búðardalur—Króksfjarðarnes verða á morgun, 25. júlí, opnaður tvær 3. fl. landssímastöðvar í Dalasýslu: Asgardur og Staðarfell. í »Lögbirtingablaðinu< 19. júlí er birt yfiríit yfir hag íslands- banka, eins og hann stóð 31. maí síðast liðinn. Þegar ég var að íesa skuidahíið reikningsins, datt mér í hug: Hvar gefur rlkislánið verið í þessum reikningi? En bankinn fékk hjá ríkissjóði 280 þús. storlingspund af enska láninu, eins og kunnugt er. 31. maí var gengi á sterlings- pundum hér í böukuoum kr. 28,50, og 280 þús. stejrl.pd. eru því 7 milj. 980 þús. kr. í ísl. peningum. Ég las og laa reikninginn, en gat hvergi fundið neinn skulda- lið, sem ríkislánið gæti verið falið í. Ekki var það hlutaféð, ekki bankaváxtabréf; seðlar eru liðugar 6 miij. og eru að vísu lán frá landinu, en ekki er það þó brezka lánið. Ionstæða á híaupareikningi getur það ekki verið og ekki heldur innlánsíé (sparisjóður); ^extir o. fl. eru ekki nema liðug 800 þús. og kemur ekki holdur til greina. En þá eru erlendir bankar, og sú skuldar- upphæð er 6 milj. 619 þús. 194 kr. 38 áu. Vel gæti hugsast, að lánið væri í þessum Iið, ©f fjár- hæðin væri ekki 1 mi!j. og lið- lega 300 þús. lægri, og þá skuld- aði íslandsbanki erlendum bönk- um ekkert, ef lánið væri í þess- um lið, en það mun bankinn þó gera. Þá er næst liður, sem heitir >ýmsir skuldheimtumenn< og er 6 milj. 802 þús. 109 kr: 87 a. Ég hrfi heyrt ýmsá segja, að í þessurn lið væii brezka lánið falið. En eins og menn sjá, þá er hér talað um »ýmsa skuld- heimtumenn<, svo að það eru fleiri en ríkissjóður einn, og auk ess er liðurinn meira en 1 milj. kr. lægri, en lánið átti að vera eftir genginu á pundi 31. maí. Þá eru ekki eítir á reikningn- um nema 3 skuldaliðir: ógreidd- ur arður, varasjóður og ágóði 1922, og dettur víst engum í hug að leita þar. Mönnum kann nú að þykja það ótrúlegt, að ekki sé hægt að finna jafnlaglegan skilding og nærri 8 miljónir króna í reikn- ingsyfirliti banknns. En ég segi: Leiti þeir sjálfir og viti, hvort þeir geta fundið. Og væri ég »ríkisvald< í þessu landi, mundi ég ekki hika við að »bjóðá út Iiði< til að leitá dauðaleit að þessum 8 miljónum, og heita háum fundarlaunum þeim, sem fundið gæti. Þáð mundi koma sér vel núna f at- vinnuleysinu. Krummi. Slys. í morgun vildi til það sorglega slys, að á ytri höfniuni hvolfdi sandpramma, er var að koma oían af Kjalarnesi. Tveir menn voru í prammanum, og drukknaði annar þeirra, Erlend- ur Gíslason, sjómaður, Austur- stiæti 7. Hann var kvæntur og • lætur eftir sig tvö kornung börn. Etlendur sálugi var einn af okk- ar áhugasömu og góðu flokks- mönnum og meðlimur Sjómanna- félagsins frá stofnun þess. Erlend símskeyti. Khöfn, 24. júlf. Þjóðrerjar vllja í þjóða- bandalagið. Frá Berlín er símað: Meiri hluti ríkisþingsins hefir samþykt að sækjá um upptöku f þjóða- bandalagið. Hnngursneyð í Rulir- hérnðnnnm. Hungursneyð er talin fyrir dyrum í Ruhr-héruðunum, því að erfiðleikar um flutningaferðir hindra aðflutninga matvöru. Lýðveldislireyfing í Grikk- — landl. Frá Belgrad er símað: Fullyrt er, að Venizelos sé að koma af stáð lýðveldishreyfingu irá Salo- niki með fjárstyrk frá grísk- armenskum bankamönnum. — Stjórnin hefir dregið saman alt Iið sitt til þess að bæla niður hreyfinguna. Hafnarverkfallið í Englandi. Frá Lundúnum er símað: Hafnarverkfallið grípur um slg af nýju. Kosuingarréttnr á að vera almennur, jafn og helnn og fyrir alla, jafnt konur sem karla, sem eru 21 árs að aidri.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.