Hlín - 01.01.1951, Page 157
Hlin 155
Utvarpið, þar höfum við endurheimt gömlu kvöldvökurnar, og
vel það á sumum sviðum.
Já, mikið hef jeg haft gaman af að frjetta af heimilisiðnaðar-
þinginu þai’na á Litlahamri. Og hvað þið eruð skörulegar og til
sóma þessar konur sem utan farið. — Þær sjá það konurnar í
nágrannalöndunum, að heimilisiðnaður er ekki aðeins nauð-
syniegur vegna afkomu heimilanna og prýði, heldur einnig
vegna uppeldisins, og þessvegna allstaðar aukinn áhugi fyrir
því að koma starfinu inn í skólana. Það er gleðilegt. — Þetta
höfum við einnig sjeð. — Það má ekki lama starfsþrána, sem er
svo rík strax hjá í börnunum, og þá um leið starfsgleðina, þeim
góða förunaut á lífsleiðinni. — Jeg hef reynslu fyrir því, hvað
börn og unglingar þrá að starfa með, þó þau sjeu við bóknám og
læra ekki síður.
Það er furða hvað það helst við „að tæta og iðja“ ýmislegt hjer
hjá okkur, þó heimilin sjeu fámenn, við getum ekki án þess lif-
að. — Grannkonur mínar sauma allan fatnað handa sínu heima-
fólki (nema þá spariföt karlmanna), ef þær fá efni, og sauma vel.
Hafa þó sumar aldrei í skóla farið. Jeg dáist að þeim hæfileik-
um, sem með þjóðinni búa. — Jeg sauma hversdagsbuxur
handa manni mínum og sonum, þó jeg sje oftast ein, og fleiri
flíkur, prjóna einnig alla sokka og nærföt (á vjel). — Nú árar
að nota vaðmálin — og bandið spinnur Gefjun einnig fyrir mig
að mestu. — Það er margt gott unnið þarna í nánd við hana
litlu Glerá. — Þ.
Sveitakona á Austurlandi skrifar á útmánuðum 1951:
Hjer er fátt að frjetta, maður hugsar ekki um annað en hve-
nær muni koma hláka og gott veður, og fer sú von að verða
langdregin. — Það fer nú að saxast upp í ár, sem maður hefur
getað sjeð örugglega fyrir gott veður heilan dag. — Hjer er óg-
urlega mikill snjór og ískyggilegt ástand að verða, og mikið
verður maður feginn, þegar þessi vetur er á enda, hver sem þá
endirinn verður, en það er þá búið. — Það er þreytandi fyrir
bændafólkið að ganga með nagandi kvíða fyrir þessum bless-
uðum skepnum dag eftir dag. — En Guði er ekkert ómáttugt,
því er löngum best að trúa.
Við komum hjer upp í sumar dieselrafstöð (mótor), það eru
alveg dásamleg umskifti frá kolavjelinni. Þaðan höfum við
orku til suðu, ljósa og upphitunar, og það verð jeg að segja að
þegar kuldinn og harðindin úti hafa níst sál og sinni, þá hefur
birt í huga mínum, þegar mótorinn er settur á stað og sendir
frá sjer ljós og yl um alt húsið. — Já, betur að allir gætu notið