Melkorka - 01.04.1950, Síða 20

Melkorka - 01.04.1950, Síða 20
Islenzkir minjagripir Eftir Auði Sveinsdáttur Svo virðist sem við íslendingar höfunt sérstætt markmið í iðnaðarframleiðslu þeg- ar við tökum okkur fyrir liendur að útbúa vörur til að selja eða setja í búðarglugga. Þá er eins og við gleymum öllu því góða sem við kunnum og álpumst á að framleiða einhvern óhroða, engu líkara en við leit- umst frekar við að treysta á ósmekk og menningarleysi kaupendanna en það gagn- stæða. Skemmst er að minnast minjagripanna frá stríðsárunum sem fylltu flesta búðar- glugga Reykjavíkur. Ámáluðu silki- og flau- elstuskurnar, gibsdótið gulgráa (sem var lík- ara því að hundur hefði skilið eftir sig á víð og dreif í sýningargluggum en að það væri gert af mannahöndum), tuttuguog- fimmeyringabeltin, fimmauraarmböndin logagylltu og einseyringahálsböndin sem seldust svo prýðilega og við héldum að Eng- lendingum og Ameríkönum þættu svo fall- eg. Við gættum þess ekki að þetta var ís- lenzkur smekkur, en livorki enskur né amer- ískur; framleiðsla eftir eigin vali. Og liefði nokkrum hugkvæmzt að framleiða smekk- legan hlut liefði liann selzt eins vei. Útlend- ingarnir urðu aftur á móti að taka það sem til var svo þeir gætu sent vinum sínum og ættingjum svolítinn áþreifanlegan vott um menningu þess lands sem þeir gistu. Lítið hefur breytzt til batnaðar síðan. í fyrra kom liér fjöldi ferðamanna í skiptum við íslendinga sem fóru kaupstaðarferð til Skotlands með Heklu. Af tilviljun sá ég ,,minjagrip“ sem kona úr þessum hópi keypti sér. Það var lopapeysa, iopinn þung- ur af óhreinindum og vélafitu, sem henni var sagt í búðinni að hún gæti þvegið úr heima hjá sér! Þessi groddi var með rykkt- um ermum eins og silkiblúsa og að öllu leyti illa sniðinn, veruleg liandaskönnn, og kostaði 140 krónur eða rúm 5 pund ensk og var það liærra verð en konuna hefði dreymt um að borga fyrir fyrsta flokks skozka garn- peysu í heimalandi sínu. Hér á landi er og hefur alltaf vettð l jöldi listhagra kvenna sem útbúa sntekklega muni, stóra og smáa, til gjafa og til að prýða heimili sín eða jafnvel til að loka niður í kommóðuskúffu. En strax og varan á að vera til sölu taka þær upp fáránlegustu vinnubrögð, svo sem að hekla gisna smá- barnakjóla úr einföldum lopa sem þær vita fyrirfram að er gabb og einskisnýtt verk, þar sem lopinn drafnar í sundur eftir fáeina þvotta. Ekki dugir hér að bera við efnis- skorti. Því betra er að gera ekki neitt lteld- ur en þetta. Það ætti þó að vera eðlilegast að spinna lopann og þvo bandið áður en lögð er vinna í að útprjóna dýrar peysur til að selja út úr landinu. Við kvenfólkið ætt- um að líta til baka, aftur fyrir glysfram- leiðslu stríðsáranna, hvort ekki megi finna lítinn, laglegan hlut úr safni forntæðra okk- ar. Það mætti áreiðanlega endurlífga marga smáhluti sem þær notuðu til orlofsgjafa og unnustugjafa, einfalda þá ef með þarf og notfæra sér á nýjan liátt sem minjagrip eða kveðju frá íslandi. Minjagripir mega um- iram allt ekki vera innfluttir eða stæling á einhverju útlendu sem aldrei hefur þekkzt í landinu. 18 MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.