Melkorka - 01.03.1961, Qupperneq 8

Melkorka - 01.03.1961, Qupperneq 8
flok'ksins eru aðeins tegundar myndir, Þor- steinn er að yrkja um mennskar manneskj- ur, elskendur allra tíma. Sagan um Ragn- heiði og Daða er yfirvarp, en skáldið notar hana til þess að koma á framfæri nýjum hugmyndum samtímans um ástina sem ráð- andi afl í sambúð manns og konu. Það var frelsi ástarinnar, sem hann var að boða. Skáldið er ekki að lýsa einstaklingsörlög- um, heldur er harmsaga Ragnheiðar og Daða einnig harmsaga samtímans. Kristinn E. Andrésson hefur fyrstur bent á að Eiður- inn er tilgangskvæði (Eyjan hvíta 53).* í kvæðaflokki Þorsteins er Brynjólfur tákn og inntak þess afturhalds og mann- skemmdaafls, sem Þorsteinn er að berjast við og því leggur hann allan kraft sinn í höggin. í persónu biskups speglar skáldið þjóðfélagið, sem hefur afskræmt líf einstakl- inganna með úreltum kennisetningum, boð- um og bönnum. Þorsteinn er ólmur gegn þessum kennisetningum. Þorsteinn vildi losa um hömlur kirkju og kreddu, sem samtíðin var hneppt í. Það var mannasetning, að maður eða kona áttu ekki að giftast niður fyrir sig, eins og það hét. Það var mannasetning, að hjónaband væri hagsmunasamband, að fjármunir ættu að ráða sambandi karls og konu. Hér er einn þáttur þeirrar jafnaðarliugsjónar, sem sósíalistar samtímans höfðu á dagskrá sinni og Þorsteinn hafði tileinkað sér. Eins og í öðrum tilgangskvæðum sínum er hann víg- fimur í bezta lagi, sum skeytin, sem hann * Þó að seint sé er hann beðinn afsökunar að þessa var ekki getið er fyrirlesturinn var fluttur, 27/9 1958. Vegna hins nauma tíma til undirbúnings (8 daga) yfir- sást mér að hann hafði bókfest þetta höfuðatriði 1951. N. Ó. sendir, eru baneitruð, önnur eins og nálar- oddar, hnyttnin og háðið leika um völl og skellt er upp á gátt fylgsnum mannlegrar ódyggðar. Eiðurinn er runninn upp úr þjóðfélags- hugsjónum liöfundarins. í ljósi þeirrar stað- reyndar verður að meta boðskap hans. Þjóð- in tileinkaði sér þennan boðskap vegna þess að þeirri kennisetningu kirkjunnar sem Þorsteinn yrkir gegn, hafði hún aldrei veitt siðferðilega viðurkenningu í raun frek- ar en þjóðskáld hennar Þorsteinn Erlings- son. HEIMILDARIT: Bjarni Benediktsson frá Hofteigi: Þorsteinn Erlingsson, Rvík, 1958. Eimreiðin I, Khöfn 1895, II, Khöfn 1896, XX, Khöfn 1914. Guðmundur Kamban: Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Skírnir, Rvík 1929. - Skálholt, Rvík 1930-1935. Jón Halldórsson: Biskupasögur I—II, Rvík 1903—1910 og 1911-1915. Kristinn E. Andrésson: Eyjan hvíta, Rvík 1951. Sigurður Guðmundsson: Þorsteinn Erlingsson og Eið- urinn, Heiðnar hugvekjur og mannaminni, Akureyri 1946. Sunnanfari XII, II, Rvfk 1913. Torfhildur Hólm: Brynjólfur biskup Sveinsson, Rvík 1882. Torfi Jónsson: Æfisaga Brynjólfs Sveinssonar biskups, viðauki við Biskupasögur Jóns prófasts Halldórsson- ar II. B (sjá að ofan). Úr bréfabókum Brynjólfs biskups Sveinssonar, Jón Helgason bjó til prentunar, Safn Fræðafélagsins, Khöfn 1942. Valtýr Guðmundsson: Þorsteinn Erlingsson, Eiðurinn. Kvæðaflokkur, Rvík 1913. Eimreiðin XX, Khöfn 1914. Þjóðviljinn ungi IV, ísafirði 1894. Þorsteinn Erlingsson: Eiðurinn. Kvæðaflokkur, Rvík 8 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.