Melkorka - 01.03.1961, Blaðsíða 36

Melkorka - 01.03.1961, Blaðsíða 36
H-F EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður haldinn í fund- arsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 3. júní 1961 og hefst kl. 1.30 eftir hádegi. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1960 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjómarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendur- skoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef tillögur korna fram). 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönn- um hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 30. maí—1. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal- skrifstofu félagsins í Reykjavík. Ós'kað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn. Reykjavík, 10. janúar 1961. STJÓRNIN

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.