Valsblaðið - 01.05.2008, Page 73

Valsblaðið - 01.05.2008, Page 73
ingju með þennan frábæra völl, sem feng- ið hefur hæstu einkunn hjá þeim sem á honum hafa æft og við vonum að völl- urinn eigi eftir að þjóna félaginu vel í framtíðinni og þar vaxi upp margir góðir knattspymumenn jafnt sem dyggir félags- menn. Umfang starfsemi Valsmanna hf. Umfangið í starfsemi Valsmanna hf. hef- ur aukist með hverju ári í takt við stækk- andi fjárhag og aukna þátttöku í starf- semi Vals og framkvæmdum hér á svæðinu. Það lætur því nærri að stjórn- arformaður Valsmanna hf. hafi setið nærri 70 formlega fundi á vegum félags- ins á liðnu starfsári auka fjölda smærri óformlegra funda. Samskipti okkar Ing- ólfs hjá Frjálsa eru t.d. oft dagleg og oft á dag suma daga um málefni félagsins. I stjórn Valsmanna hf hafa setið 7 stjómar- menn en þeir em auk mín; Ingólfur Frið- jónsson, Guðni Bergsson, Jafet Ólafsson, Theódór Halldórsson, Karl Axelsson og Karl Jónsson. Það hefur ríkt mikill einhugur meðal stjómarmanna um öll málefni félagsins og samstaða stjórnarmanna verið með eindæmum góð. Ég vil nota tækifærið og þakka meðstjórnendum mínum fyrir samstarfið á liðnu starfsári um leið og ég tilkynni að allir stjórnarmenn gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. í forgrunni þess kynningarefnis sem hér er birt. Uppbygging þessa vallar er ekki bara skemmtilegt og ögrandi verkefni heldur er það lifandi sönnun þess að við stönd- um við einkunnarorðin sem standa fyrir ofan tröppurnar þegar gengið er hér upp á efri hæðina. „Hugsjónir okkar um full- komnun Hlíðarenda verða að vera háleit- ar. Með það fyrir augum og í samræmi við það verður hvert handtak að vinnast og hver hugsun að miðast." Ólafur Sig- urðsson 1941. íþróttamannvirkin á Hlíðarenda eru ekki eins og hver önnur íþróttamann- virki og aðalleikvangurinn verður ekki bara eins og hver annar knattspyrnu- völlur. Þetta eru og verða glæsileg og hugvitssamelga hönnuð íþróttamanna- virki sem staðsett eru í hjarta borgarinn- ar. Umhverfi þeirra sem rammast inn af Öskjuhlíðinni, Vatnsmýrinni og miðborg- inni ásamt ölium þeim höfuðstofnunum borgarinnar, sem eru í næsta nágrenni munu gera þessi mannvirki einstök. Okkur öllum sem félagsmönnum í Val bíður síðan það ögrandi verkefni að skapa þessum mannvirkjum líf, líf sem iðar af þeim krafti og bjartsýni sem við viljum að Knattspyrnufélagið Val- ur standi fyrir. Hlíðarendi á að mínu viti að vera sá staður sem okkur öll langar að heimsækja reglulega hvort sem það er til að fylgjast með börnunum okkar í leik og starfi, fylgjast með keppnisliðum okkar í Brynjar Harðarson, formaður Vals- manna hf. afhendir Val nýjan gervigrasvöll í desember 2008. keppni við þá bestu eða bara til að hitta vini og félaga. Ég vil trúa því að sú staða sem nú er komin upp í okkar litla þjóðfélagi eigi eftir að hafa mikil áhrif á gildismat okk- ar og við munum í æ ríkara mæli leita til upprunans og spyrja okkur hvar er minn staður - hvert er mitt umhverfi - hverj- um vil ég ljá krafta mína. Annað markmiðið lýtur að fjárhags- legri umgjörð Vals. Hlutverk Valsmanna hf. liggur fyrir bæði í samþykktum þess og allri þeirri þróun sem félagið hefur gengið í gegnum frá stofnun þess. í eign- um Valsmanna hf. og þeim möguleikum sem búa í vexti þeirra og viðgangi liggja einstök tækifæri. Við þurfum um leið og efnahagsleg- ar forsendur leyfa að stefna ótrauð að því að byggja upp styrktarsjóðina sem þeg- ar hafa verið lögð drög að. Á sama tíma þurfum við að tryggja áframhaldandi stöðu Valsmanna hf., sem fjáhagslegur bakhjarl Knattspyrnufélagsins Vals. Verk- efni framtíðarinnar eru óþrjótandi og Val- ur þarf að halda áfram að vaxa og dafna þannig að þetta ástkæra félag okkar sem stendur á traustum gömlum grunni verði síungt og þróttmikið - já einstakt félag. Brynjar Harðarson formaður Valsmanna hf. Framtíðin Mig langar á þessum tímapunkti að deila með ykkur þeim draumum og markmið- um sem ég og ég tel mig hér tala fyrir mun okkar stjórnarmanna á um framtíð Vals og Valsmanna hf. Við getum stolt horft til þeirra mannvirkja sem nú hafa risið á Hlíðarenda og sagt við okkur sjálf - vel gert. Og við getum líka með bjart- sýni og tilhlökkun horft til þeirra mörgu og spennandi verkefna sem bíða okkar. Mín markmið fyrir hönd Valsmanna hf. eru kristalklár og mig langar að starfa áfram sem stjómarformaður Valsmanna allt þar til þessum markmiðum er náð eða þau í það minnsta í sjónmáli. Það fyrsta lýtur að fullnaðaruppbyggingu allra íþróttamannvirkja á Hlíðarenda. Það er því ekki tilviljun að þverskurðar- mynd af aðalleikvangnum þar sem hann er innrammaður með knatthúsbygging- unni er bæði á forsíðu ársreikningsins og Hluti stjórnar Valsmanna hf. 2008. Frá vinstri: Karl Axelsson, Brynjar Harðarson, Ingólfitr Friðjónsson, Theodór Halldórsson og Guðni Bergsson. Grímur Sœmundsen formaður Vals og fyrrverandi stjórnarmaður Valsmanna krýpur fyrir framan. Valsblaðið 2008 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.