Valsblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 9

Valsblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 9
Starfið er margt Ný flóðljós voru tekin í notkun í vetur og skipta þau sköpum fyrir œfingar knattspyrnu- manna. stjóri, Sverrir Traustason, forstöðumaður mannvirkja og Elín Elísabet Baldursdótt- ir og Baldur Þ. Bjamason eru húsverðir. Fastir liðir I félagsstarfi-Vals eru margir liðir fastir og hafa verið hluti starfsins lengi. Sumir þeirra láta lítið yfir sér en þegar grannt er skoðað mynda þeir heild sem hlúa þarf að reglulega og margir myndu sakna þeirra ef þeir hyrfu. Um jólin 1998 kont Valsblaðið út í 50. skipti og þar var enn haldið áfram að skrá sögu félagsins, sigra og töp á keppnisvellinum og annars staðar. Skráningarstarfið er í fullum gangi og á árinu komu jafnframt reglu- lega út fréttabréf félagsins. Valsmenn luku síðan árinu 1998 með því að velja Guðmund Hrafnkelsson, fyrirliða meist- araflokks karla í handknattleik, íþrótta- mann Vals fyrir það ár. Það var ekki erfitt val enda flokkur hans bæði íslands - og bikarmeistari í handknattleik. Guð- mundur varð því fyrstur Valsmanna til að hljóta þetta sæmdarheiti tvisvar því áður var hann kjörinn á árinu 1993. Bridge- mót, þorrablót, herrakvöld, flugeldasala og þrettándabrenna voru síðan á sínum stað á dagskránni. Valsmenn héldu áfram blómlegu sumarstarfi jafnt undir merkj- um Sumarbúða í borg og námskeiða sem haldin voru á vegum einstakra deilda fé- lagsins. Valskórinn söng líka fyrir félags- menn og aðra á árinu undir stjóm Gylfa Gunnarssonar, starf í Friðrikskapellu var og með svipuðu sniði og áður. Að venju var síðan opið hús á félagssvæðinu hinn 11. maí 1999 þegar félagið varð 88 ára. Félagsstarfið og keppni Ágætur félagsmaður orðaði það þannig á félagsfundi í haust að Valur væri „sigur- félag“ og hefð væri fyrir sigrum innan þess. Með vísan til þessa er ljóst að árið 1999 er ekki besta ár í sögu félagsins hvað árangur á íþróttasviðinu varðar. Því er ekki að leyna að talsvert mikil von- brigði urðu með árangur í keppnisflokk- um félagsins og í meistaraflokkum karla hefur árangur lrklega aldrei verið jafn slakur samtímis á einu ári eins og á árinu 1999. Kvenfólkið hélt merki félagsins á lofti og yngri flokkar kvenna skiluðu í hús mörgum góðum titlum á árinu auk þess sem nokkrir titlar unnust í yngri flokkum karla en þó færri en stundum áður. I haust fannst Valsmönnum um allt land nóg komið af slæmu gengi og hvar sem Valsmenn komu saman var ákveðið að láta ekki deigan síga og blása til sóknar á sem flestum sviðum. Þetta hef- ur þegar sýnt sig í félagsstarfinu. Aldrei hafa t.d. fleiri keypt ársmiða á leiki í handknattleik en í haust og áhorfendur fjölmenna á leiki jafnt hjá konum og körlum. Innan knattspymudeildar var haldinn fjölmennasti aðalfundur í langan tíma nú í október og þar kom fram ein- dreginn ásetningur um að bæta gengi knattspymunnar í Val. Ualsmenn hf. Hinn 1. desember s.l. var síðan stofnað hlutafélagið Valsmenn hf. á glæsilegum stofnfundi sem haldinn var að Hlíðar- enda. Þar varð til félag sem á að vera fjárhagslegur bakhjarl fyrir Val í framtíð- inni eins og fram kom í samþykktum fundarins. Mikill fjöldi Valsmanna tók þátt í stofnun félagsins og skráði sig til þátttöku í því með hlutafjárloforðum og greinilegt var að góður undirbúningur skilaði sér. Það var öllum ljóst sem voru á fundinum að þar voru saman komnir félagsmenn sem vilja vinna að fram- gangi Vals. Þeirra heitasta ósk er að sjá árangur af starfi Valsmanna hf. koma fljótlega fram í íþróttalegu starfi deilda Knattspymufélagsins Vals. Aðalstjóm Vals fagnar að sjálfsögðu þessu nýja afli sem þama varð til og hlakkar til samstarfs við stjórn Vals- manna hf. Allir hluthafar Valsmanna hf. munu að sjálfsögðu fylgjast með fram- gangi þess félags og skoða töflur urn gengi hlutabréfa og arð. En þessir sömu Valsmenn munu lflca fylgjast með stiga- töflum og árangri einstakra flokka fé- lagsins og vonandi er að sá arður sem þar kemur fram verði ekki minni en sá fjárhagslegi. Valmenn munu ekki láta mótlæti, hvað varðar árangur í einstökum flokkum á síðasta ári, draga úr sér kjarkinn, heldur mæta tvíefldir til leiks á árinu 2000 og vonandi verður það gott og gæfuríkt fyr- ir þá og þeirra fjölskyldur. Aðalstjórn Vals sendir öllum félags- mönnum jólakveðjur og þakkir fyrir samstarfið á líðandi ári. Ahugasamir drengir í 7.flokki á afmœlismóti KRR í nóv. ’99 ásamt þjálfaranum Arna Viðar Þórarinssyni. Mynd: Þ.O. 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.