Valsblaðið - 01.05.1999, Page 23
Ettir Pétup Örn Sigurösson
„Nú þarf að
Kristinn Lárusson er 26 ára gamall ieik-
maður með meistaraflokki karla í knatt-
spyrnu. Kristinn var valinn leikmaður
ársins sumarið 1999 og skipti viðurkenn-
ingunni með Sigurbimi Hreiðarssyni.
Kristinn er Valsmaður að upplagi, æfði
með Val til 9 ára aldurs en flutti þá til
Garðabæjar og hóf knattspymuferil sinn
í meistaraflokki með Stjömunni í Garða-
bæ. Árin 1993-1995 lék Kristinn með
Val en síðan aftur með Stjömunni árin
1996-1997 þegar hann fékk sumarfrí frá
námi í Baodarikjunum. Kristinn var einn
lykilmanna í liði ÍBV sem varð íslands-
og bikarmeistari árið 1998 en skipti yfir í
Val í október 1998 og gerði þá samning
við Val sem gildir til ársloka árið 2000.
Ertu sáttur við eigin
frainmistöðu á síðasta tímabili?
„Mér finnst ekki rétt að tjá mig um
frammistöðu einstaklinga í liðinu. Vissu-
lega stóðu sumir sig betur en aðrir en að-
alatriðið er að liðið sem heild olli mér og
öðrum Valsmönnum gífurlegum von-
brigðum.”
Nú þegar fjölmargir leikmenn hafa
farið til útlanda í atvinnumennsku,
liggur beinast við að spyrja hvort at-
vinnumennskan hafl ekkert heillað þig
eða er það vinnan sem gengur fyrir?
„Vissulega heillaði atvinnumennskan
mig og gerir að sumu leyti enn. Á sínum
tíma afþakkaði ég nokkur boð um að
SPÍta, lófana"
Kristinn Lárusson var kjörinn leikmaður ársins hjá meistaraflokki
Kristinn Lárusson segir að tími endurbóta
og uppbyggingar sé að hefjast hjá Val.
Mynd Þ.Ó.
leika erlendis vegna skólaveru minnar og
ég get sagt kokhraustur að ég sjái alls
ekki eftir þeirri ákvörðun. Auðvitað
hugsar maður; hvað EF? En það er meira
til að kitla egóið frekar en eitthvað ann-
að. I dag er ég í mjög góðri vinnu á við-
skiptastofu SPRON, þannig að ef mér
byðist að spila erlendis yrði það á öðrum
forsendum en flestir fara á. Flestir fara í
atvinnumennsku bara til að fara og koma
svo heim með skottið á milli lappanna!”
Verður hörð barátta um að komst upp
í úrvalsdcildina á næsta ári?
„Baráttan í 1. deild verður án efa ansi
hörð. Við Valsmenn ætlum auðvitað
beinustu leið upp. Markmið allra liða
hlýtur að vera það sama; að vinna. Það
er ljóst að ekkert verður gefins á næsta
ári og leikmennimir verða að gera sér
grein fyrir stöðu mála. Það þýðir ekki að
fara í hlutina með hangandi haus og ég
er sannfærður um að liðið muni ná settu
marki. Leikmannahópurinn fyrir næsta
tímabil er ekki fullmótaður en eins og
hann er í dag er góð blanda af „eidri“ og
yngri leikmönnum og því ætti þessi
kryddblanda að virka vel.“
Hvað þarf til að Valur
komist í fremstu röð?
„Ef Valur vill komast á toppinn á ný tel
ég að það þurfi að breyta hugsunarhætti
félagsins í heild. í dag hefur Valur náð
botninum og nú er svo komið að tími
endurbóta og uppbyggingar á starfsemi
knattspymudeildar er hafinn. Róm var
ekki byggð á einni nóttu svo að menn
verða að gefa sér tíma. Byrja verður á
því að hlúa vel að unglingastarfinu og
við karlamir megum taka kvennaflokka
félagsins okkur til fyrirmyndar þar. Ann-
ar mikilvægur þáttur er sá að yngri leik-
menn finni að þeir eru jafn mikilvægir
og aðrir. Nú þegar er ljóst að stjóm
deildarinnar hefur tekið stórt skref í átt
að endurbyggingu með það að markmiði
að koma Val á stall meðal þeirra bestu.
Nú þarf bara að spýta í lófana og hefjast
handa við að koma Val þar sem félagið á
að vera; áTOPPNUM.”
VALSMENN, bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Við erum BANKINN í hverfinu ykkar!
® BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF
Austurbæjarútibú • v/Hlemm • Laugavegi 120 • 155 Reykjavík • Sími 525 6400
Valsblaðið 1999
23