Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 6

Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 6
• fl að fjölga eða fækka liðum í 1. deild? • Uantar sterkari persónleika í boltann? • Hvers vegna hefur áhugi á handbolta dvínað? Geir Sveinsson, þjálfari Vals, ræðir um meistaraflokkinn, árin í atvinnumennskunni og landsliðsmálin Það er auðvelt að vera vitur eftir á, segir Geir Sveinsson. Þrátt fyrir að hafa byrjað seint að æfa handbolta er Geir Sveinsson, þjálfari meistaraflokks Vals, einn albesti hand- knattleiksmaður sem við Islendingar höfum átt. Hann hefur leikið um 350 landsleiki fyrir íslands hönd og hefur hampað íslandsmeistaratitlinum 5 sinn- um ásamt því að hafa orðið Reykjavíkur- og bikanneistari og hlotið fjölda per- sónulegra viðurkenninga. Uti í hinum stóra heimi hefur hann ekki látið fara minna fyrir sér þar sem hann hefur með- al annars orðið bikar- og Evrópumeistari með Valencia á Spáni. En kom einhvem tímann til greina að Geir hefði valið aðra íþróttagrein? „Nei, það kom aldrei til greina. Ætli ég væri bara ekki einhversstaðar í 3. deild með bumbuna út í loftið, eða jafn- vel löngu hættur, hefði ég t.d. valið fót- boltann.“ Eða dómari. Er ekki alltaf sagt að þeir sem geta ekki neitt í íþróttum endi sem dómarar? „Maður hefur jú heyrt það og ætli það hefði ekki orðið hlutskipti mitt í knatt- spyrnunni.“ Nú áttu glæsilegan handknattleiksferil að baki en þú byrjaðir nokkuð seint að æfa? „Já, ég byrjaði ekki fyrr en ég var 12 eða 13 ára gamall að æfa handbolta og fót- bolta. Eg var svo alveg á fullu í báðum íþróttum þar til ég gerði mér það ljóst að ég átti heima í handboltanum. Ég var valinn í öll unglingalandsliðin í hand- bolta og oft á tíðum spilaði ég einnig með næsta landsliði fyrir ofan þann ald- urshóp sem ég átti að vera í. Þetta var því ntjög auðvalið fyrir mig.“ Þú keniur svo inn í Valsliðið mjög ungur. „Fyrsta meistaraflokksleikinn spilaði ég 16 ára og það var árið 1980 í Laugar- dalshöllinni. Ég fékk örlítið forskot á Itina strákana eins og Júlíus, Valdimar og Jakob. Ég kom inn um vorið en svo komu hinu ungu strákarnir inn þá um haustið. Fyrst um sinn átti maður ekki fast sæti þrátt fyrir að vera alltaf í hópn- um en þegar ég var 19 ára gamall fór ég að spila reglulega - 1983. Síðan lék ég með Valsliðinu alveg þar til árið 1989 þegar ég fór út í atvinnumennskuna. Það var eftir B-keppnina frægu en margir strákar fóru út í atvinnumennsk- una þá. Ég hóf ferilinn hjá Granollers á Spáni og var ég þar í tvö ár. Fór síðan til Valencia, kom síðan heim í eitt ár, fór aftur út til Valencia, aftur heim og lék tvö ár í Frakklandi og síðan tvö ár í Þýskalandi." Þú komst heim eftir að hafa orðið Evrópumeistari með Valencia, hvernig stóð á því? „Það vildi nú þannig til að í nóvember það ár, ('94) gerðu forráðamenn klúbbs- ins okkur grein fyrir því að liðið væri búið að missa aðalstyrktaraðilann og allt væri í óvissu varðandi launagreiðslur okkar. I kjölfarið fóru ýmsir vafasamjr hlutir að koma í ljós varðandi fjármál klúbbsins sem endaði með afsögn forseta og stjómar félagsins. Þeir sem tóku við gerðu okkur grein fyrir stöðunni og sögðu að okkur væri frjálst að fara frá félaginu. En jafnframt tóku þeir fram að ef við yrðum Evrópumeistarar fengjum við launin okkar og allir leikmennimir ákváðu að snúa bökum saman og klára verkefnið. Við gerðum það en fengum hins vegar aldrei krónu greidda og eftir að hafa gengið á spariféð þessa mánuði var maður sár og svekktur og vildi bara koma heim.“ Þú hefðir samt getað verið áfrani úti? „Já, nokkur félög vildu fá mig en ég leit á það sem besta kostinn að koma heim. Þá var undirbúningurinn fyrir HM '95 í fullum gangi og ég fór að vinna við hann. Ég gat því einbeitt mér alfarið að handboltanum og ég held að það hafi verið ein af ástæðunum fyrir því að mér 6 Valsblaðið 2000

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.