Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 12
með öllum rekstrarútgjöldum. Áætlana-
gerð og samningar um meiriháttar út-
gjöld verða einnig undir hatti nefndar-
innar og heimildir til að stofna til út-
gjalda verða á hendi færri aðila en áður.
Nefndin mun jafnframt fara yfir stöðu
fjármála á fundum stjóma með mun
reglubundnari hætti en gert hefur verið á
undanfömum árum. Stjóm Vals bindur
miklar vonir við þessa skipan mála og
væntir þess að starf nefndarinnar leiði til
bættrar fjármálastjómunar.
Fastir liðir
Eins og vænta má í starfi félags sem á
sér langa sögu voru föstu liðimir í starfi
þess allir til staðar á árinu. Þeir mynda
eins og áður ákveðna heild og ramma
um félagsstarfið sem hlúa þarf að. Vals-
blaðið kom út í desember og var jóla-
kveðja til félagsmanna. Þeirri skemmti-
legu hefð var haldið að upplýsa um kjör
íþróttamanns Vals í hádeginu á gamlárs-
dag og ljúka þannig starfsárinu. Að
þessu sinni var knattspymukona Ásthild-
ur Ingibergsdóttir kjörin íþróttamaður
Vals. Bridgemót, þorrablót, herrakvöld,
flugeldasala, þrettándabrenna, Sumar-
búðir í borg og námskeið á vegum ein-
stakra deilda vom líka á sínum stað. Að
venju var síðan opið hús á félagssvæðinu
hinn 11. maí 2000 þegar félagið varð 89
ára. I tengslum við félagið var starfsemi
Valskórsins haldið áfram og hlutafélagið
Valsmenn hf. hóf starf sitt og verið er að
móta samvinnu þess og Knattspymufé-
lagsins Vals þessa dagana.
Félagsstarfið og keppni
Á árinu 2000 skiptust á skin og skúrir í
íþróttastafi félagsins. Félagið náði einum
af stóm titlunum sem í boði voru þegar
stúlkumar í meistaraflokki í handknatt-
leik urðu bikarmeistarar eftir æsispenn-
andi úrslitaleik við Gróttu/KR í Laugar-
dalshöllinni. Knattspymumenn náðu tak-
markinu, sem þeir settu sér í upphafi árs-
ins, þ.e. að vera aðeins eitt ár utan efstu
deildar í meistaraflokki. Meistaraflokkur
í körfubolta vann einnig sæti sitt í úr-
valsdeild að nýju þannig að árangur
þessara flokka var góður. Hins vegar var
árangur meistaraflokks karla í hand-
knattleik s.l. vetur ekki góður og liðið
komst ekki í úrslitakeppnina annað árið í
röð. Um árangur í einstökum flokkum
má lesa í skýrslum stjóma og verður
ekki frekar fjallað um hann hér.
Á árinu tóku félagsmenn virkari þátt í
ýmsu félagsstafi Vals en áður. Öflugur
hópur foreldra stóð fyrir nýjungum í starf-
inu í sumar og haust sem nánar er vikið
að annars staðar í blaðinu. Mjög ánægju-
Pétur Guðmundsson hjálpar dreng-
hnokka að troða á hátíð að Hlíðarenda
þegar íþróttagreinar félagsins voru
kynntar á haustdögum og fyrirtœkjum
gafst kostur á að kynna vörur sínar.
legt var að sjá hvað þama var um vel
skipulagða og fjölbreytta dagskrá að
ræða sem augljóslega féll í góðan jarð-
veg hjá þeim sem sóttu og einnig að nýir
aðilar voru tilbúnir að koma að starfsemi
innan Vals.
Viöræður við
Ungmennafélagiö Fjölni í Grafarvogi
Innan stjómar Vals eru framtíðarmál fé-
lagsins stöðugt til skoðunar. Sífellt er
spurt hvað stjóm félagsins beri að gera á
hverjum tíma og hvort félagsmenn séu
ánægðir með stöðu þess. Stjómarmönn-
um var ljóst að gera má betur og í upp-
hafi árs eftir miklar umræður var ákveð-
ið að skoða nýja möguleika m.a. í ljósi
þess að hægt gekk að fá borgaryfirvöld
til að styrkja verulega uppbyggingu á
Hlíðarendasvæðinu.
Stjómin ákvað því að kanna möguleika
á samstafi við Ungmennafélagið Fjölni
sem hugsanlega gæti leitt til sameiningar
félaganna síðar. Þessi ákvörðun, sem tek-
in var í janúar, hefur sett verulega mark
sitt á starf stjómar félagsins á árinu. Fjöl-
margar ástæður lágu að baki þessari
ákvörðun en um þær verður ekki .fjallað
hér enda var það ítarlega gert í sérstöku
fréttabréfi sem út kom í júní og síðan á
aðalfundi félagsins þar sem umræður um
málið urðu mjög fjörugar. Rétt er þó að
Hin árlega þrettándahrenna á Valsvellinwn var fjölmenn að vanda enda einstök veður-
blíða, mikil stemmning og hjart hál. Enda ávallt hjart yfir Hlíðarenda.
12
Valsblaðið 2000