Valsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 66

Valsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 66
Fjárfest í veltiskil Starfsemi Valsmanna hf. hefur gengið vel á árinu. Haldnir hafa verið níu form- legir stjómarfundir auk margra smærri funda. Segja má að sú vinna, sem fór í að koma félaginu fomilega á laggirnar, hafi verið mun meiri en gert var ráð fyrir. Stofnanir eins og Hlutafélagaskrá og Verðbréfaþing Islands hf. eru mjög ná- kvæmar í störfum sínum og kröfur til al- menningshlutafélaga mjög strangar. Innheimta hlutafjárloforða gekk nokk- uð vel. Af samtals 50 milljón króna lof- orðum innheimtust u.þ.b. 46 milljónir þannig að 4 milljónir voru ekki greiddar. Eftir á að hyggja er þetta ekki slæmt inn- heimtuhlutfall en töluverð vinna var lögð í að reyna að innheimta útistandandi lof- orð. Hlutafé Valsmanna var strax komið í vörslu hjá Verðbréfastofunni hf. Eign í verðbréfum er nú um 21,2 milljónir kr. og bankainnistæður um 16 milljónir kr. Greiddar voru 5,5 milljónir til knatt- spymudeildar. Fjárfesting vegna skiltis er komin í um 4,2 m. kr.(en skiltitð mun kosta í heild um 9 m. kr.) Kostnaður við stofnun Valsmanna hf. var um 1,2 m. kr. Samtals eru þetta 48,2 milljónir. I reynd er ekki nema 1,2 m. kr. kostnaður hjá Valsmönnum því litið er á greiðslu til knattspymudeildar og framkvæmdir vegna skiltis sem fjárfestingu. Fjárhags- staða Valsmanna hf. er því sterk, pen- ingalegar eignir eru rúmar 37 millj. kr. auk annarra eigna í leikmönnum og skilti, sem gefur af sér góðar árlegar tekj- ur. A vormánuðum barst beiðni frá knatt- spynudeild Vals um þátttöku í leik- mannakostnaði deildarinnar. Miklar um- ræður fóru fram innan stjórnarinnar um hvers konar form ætti að vera á slíkum samningi og hvaða upphæðir ætti að leggja í þetta mál. Að lokum var gengið frá tveggja ára samningi við deildina. Valsmenn greiddu 5,5 millj. kr. til knatt- spymudeildar og eignast í staðinn hlut í leikmönnum. Ef um sölu á einstaka leik- mönnum verður að ræða getur myndast umtalsverður söluhagnaður. Fram hefur Myndarlegur auglýsingastandur er risinn að Hlíðarenda fyrir tilstilli Valsmanna lif. og er um álitlega fjáifestingu að rœða. komið í máli foráðamanna knattspymu- deildar að þessi samningur hafi riðið baggamuninn í baráttunni um endur- heimt sæti í úrvalsdeildinni. Strax á öðrum stjórnarfundi var tekin ákvörðun um að skoða möguleika á byggingu auglýsingastands á Hlíðarenda. Auglýsingastandar þessir, sem nú eru víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, geta verið arðvænlegar fjárfestingar. Alls eru 9 auglýsingar í gangi á sama tíma. Hug- myndin að þessu skilti er ekki ný af nál- inni en það hefur ávallt skort fjármagn til framkvæmda. Þetta er töluverð fjárfest- ing en á að geta skilað okkur og Val tölu- verðum tekjum í framtíðinni. Skiltið blasir vel við víða að. Gríðarleg vinna hefur farið í að öðlast öll tilskilin leyfi fyrir þessari fram- kvæmd. Andstöðu- og skilningsleysi sem mætti okkur í borgarkerfinu hvarflaði ekki að okkur. í byggingamefnd, skipu- lagsnefnd, umferðarnefnd og svo mætti lengi telja. Allir höfðu allt á hornum sér varðandi þetta mál. En með þrjósku, mikilli vinnu og ómetanlegri hjálp ónefndra manna fengust loks öll tilskilin leyfi. Það hefur skapað nokkra erfiðleika í starfsemi Valmanna hf. að starf á skrif- stofu Vals lá niðri um langt skeið í upp- hafi ársins. Gert hafði verið ráð fyrir að bókhald og annað skrifstofustarf hlutafé- lagsins yrði unnið á skrifstofu Vals. Nú er verið að leggja lokahönd á bókhald fé- lagsins og útgáfu hlutabréfa félagsins. Hlutabréf í félaginu verða send út inn- an nokkurra vikna en töluverð umræða varð hvort senda ætti hlutabréf út. Eins og kunnugt er þá eru flest hiutafélög að taka upp rafræna skráningu hlutabréfa og verður þá hætt að gefa út hlutabréf. Fjöl- margir hluthafar í Valsmönnum hafa hins vegar lýst því yfir að þeir vilji fá hluta- bréf í hendur og því hafa þau verið prent- uð. Rétt er að benda á að Verðbréfastofan hefur til sölu hlutabréf í Valsmönnum hf. sem eru eign félagsins sjálfs. Hægt er að kaupa þessi bréf hjá Verðbréfastofunni Suðurlandsbraut 18 og eru hlutabréfin útbúin um leið og kaupin fara fram. Hlutabréfin eru kjörin gjöf við hverskon- ar tækifæri, s.s. skímargjöf, afmælisgjöf, brúðargjöf og jólagjöf bæði til Vals- manna og annarra. Stefnt er að aðalfundi Valsmanna hf. í mars á næsta ári. Þá verður lagður fram ársreikningur og skýrsla stjómar. Þá gefst gott tækifæri til að ræða málefni fé- lagsins. 66 Valsblaðið 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.