Valsblaðið - 01.05.2002, Page 22
Valur, sigurvegari í 1. deild 2002. Aftari
röð frá vinstri: Grímur Sœmundsen for-
maður knattspyrnudeildar, Bjarni Sig-
urðsson aðstoðarþjálfari, Þorlákur
Árnason þjálfari, Þorkell Guðjónsson,
Bjarni Ólafur Eiríksson, Elías Ingi Árna-
son, Elvar Lúðvík Guðjónsson, Svanur
Jónsson, Magnús Már Lúðvíksson, Arnór
Gunnarsson, Jóhann Hreiðarsson, Hall-
dór Eyþórsson liðsstjóri, Jón Karlsson,
Reynir Vignir formaður Vals, Pálmar
Hreinsson. Fremri röð frá vinstri: Frið-
rik E. Jónsson sjúkraþjálfari, Róbert Óli
Skúlason, Steinþór Gíslason, Henrý Þór
Henrýsson, Tómas Ingason, Sigurbjörn
Hreiðarsson fyrirliði, Guðmundur Brynj-
ólfsson, Benedikt Bóas Hinriksson,
Matthías Guðmundsson, Davíð Berg-
mann aðstoðarþjálfari, Geir Brynjólfs-
son og Gunnar Örn Jónsson. Á myndina
vantar Guðna Rúnar Helgason, Ármann
Smára Björnsson, Stefán Helga Jónsson,
Sigurð Sœberg Þorsteinsson og Ágúst
Guðmundsson. (MyndÞÓ)
Eftirtaldir skipuðu stjórn knatt-
spyrnudeildar Vals starfsárið 2001-
2002:
Grímur S æ m u n d s e n , /o r/n cz<5ií r
Björn Guðbjömsson,
formaður k\>ennaráðs
Ellert Róbertsson,
formaður m.fl.ráðs karla
Halldór Einarsson,
varafomaður
Jón Gunnar Bergs, gjaldkeri
Kristbjörg Ingadóttir
Margrét ívarsdóttir
Olafur Már Sigurðsson,
formaður unglingaráðs
Úlfar Másson
Stjórnin hélt 13 bókaða fundi á starfsár-
inu auk þess sem fjöldi funda var hald-
inn í ráðum, en að venju var verkefnum
skipt á milli kvennaráðs, m.fl.ráðs karla
og unglingaráðs.
Meistaraflokkur karla 2002
Miklar breytingar urðu á leikmanna-
hópnum frá sumrinu 2001 og ljóst var
a.m.k 10 leikmenn sem spilað höfðu
með Val, mundu ekki spila áfram fyrir
félagið.
Þorlákur Arnason, sem ráðinn var
þjálfari m.fl.ka haustið 2001 fór stax að
vinna að því að setja saman lið á Hlíðar-
enda, sem væri byggt á uppöldum Vals-
mönnum. Var mjög ánægjulegt, að svo
virtist sem strax skapaðist góður andi og
öflugir strákar eins og Jóhann Hreiðars-
son, Benedikt Hinriksson, Ágúst Guð-
mundsson, Stefán Helgi Jónsson o.fl.
skiluðu sér aftur á Hlíðarenda til að spila
fyrir Val undir stjórn Þorláks. Þessi
ánægjulega þróun hélst í hendur við að
rekstrarkostnaður m.fl.ka. var stórlega
skorinn niður í samræmi við mjög skerta
tekjumöguleika, sem fylgdu dvöl í 1.
deild. Var þetta gert í fullu samráði og
samvinnu við Þorlák þjálfara og leik-
Valsblaðið 2002