Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 31
Ettir Hauk R. Magnússon
Bjössi (th) lyftir bikamum, ásamt vini sínum Guðmundi Brynjólfssyni, fyrir sigur í 1.
deild í knattspyrnu sumarið 2002. Nú verður ekki aftur snúið! (Mynd ÞÓ)
skapur. Það hefur slæm áhrif á allt í
klúbbnum ekki síst á yngri leikmennina,
að spila í 1. deild. Þegar ég var að koma
upp hjá Val sem strákur var liðið nýlega
búið að vinna marga Islands- og bikar-
meistaratitla. Þá höfðu allir einhverja til
að líta upp til. Þetta var bara Valur,
klúbbur sem segir sex. Við höfum misst
þetta núna. Fyrirmyndir fyrir þessa
stráka eru ekki margar í Val. Það er eng-
in spuming að það hefur haft slæm áhrif
á klúbbinn. Ef við lítum aftur til ársins
‘99 var það ekki alslæmt að falla. Við
gátum farið að setja okkur ný markmið.
Það var óþolandi að spila héma ár eftir
ár með það að markmiði að falla ekki.
Það var alltaf góður andi en september-
mánuður var hrein hörmung ár eftir ár.”
— Margir í liðinu eru með iitla
reynslu af úrvaisdeild og margir hafa
einungis reynslu af fallbaráttu. Er
ekki til of mikils ætlast að búast við
einhverju meiru?
„Markmiðið okkar verður að festa
okkur í sessi í deildinni aftur. Það verður
erfitt. í ljósi þess að vera með reynslulít-
ið lið og kannski ekki marga sem hafa
fundið lyktina af meistaratitlum. Það er
samt rosalega mikil fótboltageta í þessu
liði. Hvað varðar hæfileika, form og
hungur em fá lið sem standa okkur fram-
ar. Reynslan segir hins vegar mikið í úr-
valsdeild og hún gæti orðið akkilesar-
hællinn en ég hef trú á því að sú sigurtil-
finning, sem við fundum í sumar, eigi
eftir að skila miklu. Eftir þetta síðasta ár
er orðið óþolandi að tapa leik, jafnvel
þótt að það sé gegn einhverjum kónga-
liðum á borð við KR og Fylki. A okkar
degi eigum við að geta unnið öll þessi
lið. Það verður kannski ekki Islands-
meistaratitill á næsta ári en ég segi, fest-
um okkur í sessi, áttum okkur á því að
við getum þetta og höldum okkur í deild-
inni. Við getum síðan byggt ofan á það.
Getan er til staðar, engin spurning.”
— Hvað finnst þér um þá leikmenn
sem bæst hafa í hópinn?
„Mér líst mjög vel á þá. Það er mjög
gott að fá Kristin Lámsson aftur sem er
gríðarlega sterk persóna og góður leik-
maður. Það styrkir okkar framlínu óneit-
anlega að fá Hálfdán Gíslason og Jóhann
Möller. Okkur hefur vantað þennan al-
gjöra slúttara sem er með 10 til 15 mörk
á hverju sumri. Við höfum verið með frá-
bært spil úti á vellinum en hefur vantað
að klára málið inni í teignum. Ég hef
miklar væntingar til þeirra tveggja upp á
það að gera. Ég held að þeir eigi eftir að
falla vel inn í hópinn. Þeir em báðir
vinnusamir og þekkja sín takmörk og
Kiddi þekkir þetta auðvitað. Ég held að
þetta séu einmitt leikmennimir sem okk-
ur hefur vantað frekar en einhverjar
prímadonnur sem hugsa bara um sjálfan
sig.”
— Hefur þú áhuga á að spreyta þig
á ný í atvinnumennskunni?
„Ég er náttúrlega kominn með fjöl-
skyldu og vinnu hér en tel mig alveg
eiga erindi í það. Ég lenti í miklu mót-
læti í Svíþjóð, meiddist strax í fyrsta æf-
ingaleiknum eftir að hafa æft í tvo mán-
uði og missti af öllum æfingaleikjum eft-
ir það. Næst þegar ég kom inn í hópinn
var mótið hafið og þjálfarinn búinn að
mynda liðið. Ég fékk að spila nokkra
leiki og fann að ég átti fullt erindi í
deildina. Þetta æxlaðist þannig að eftir
meiðslin mín þama í upphafi náði liðið
sér á strik þegar á leið sumarið. Ég var
ekki í byrjunarliðinu á þeim tíma og
þannig hélst það út tímabilið sem endaði
með því að liðið náði alveg toppárangri.
Það var síðan skipt um þjálfara og sá hélt
sig við sama byrjunarliðið. Ég sá minn
kost vænstan að fá að fara heim en bara
vegna þess að mig langaði til þess að
spila. Mér var gefinn kostur á því í sum-
ar að fara til Start með Guðna Rúnari en
þar sem konan átti von á bami innan tíð-
ar og ég var búinn að ráða mig í vinnu
og tók ég þess vegna ekki boðinu.”
— Hvað finnst þér að sé brýnast að
bæta úr hjá Val?
„Ég vildi sjá miklu kröftugra starf í
yngri flokkunum við að búa til alvöru
fótboltamenn og hafa það að leiðarljósi
hve marga hluti er hægt að bæta. Þetta er
bara endalaust spil og vitleysa í staðinn
fyrir að búa til leikmenn fyrir hverja
stöðu. Það mætti byrja þessa sérhæfingu
aðeins fyrr en gert er.
Þá vænti ég þess síðan að menn standi
betur saman. Bæði liðið og stuðnings-
menn, þannig að við séum einn samstíga
hópur. Menn mega ekki vera of upptekn-
ir af fortíðinni og einhverjum íslands-
meistaratitlum fyrir lifandis löngu. Við
þurfum að rífa þetta upp hérna á Hlíðar-
enda, við emm með alveg klassalið til
þess. Nú er lag, við erum með toppstjórn
og mjög spennandi lið. Við eigum frá-
bæra áhorfendur eins og við sjáum þegar
komið er í úrslitakeppnina í handbolta.
Þá er troðfullt hérna og hvergi meiri
stemmning. Við vorum að spila alveg
klassabolta í sumar en það sjá okkur
kannski bara 100 manns. Það er frábær
kjami hérna af mönnum sem mæta alltaf,
eru jákvæðir og skapa mikla stemmn-
ingu. Ég hefði viljað sjá aðeins fleiri á
vellinum þegar við vorum að spila virki-
lega góðan fótbolta.
Það er hvergi betra að vera en á Hlíð-
arenda. Það er hvergi betra fólk. Bæði
aðstandendur og umhverfið og annað
slikt. Við höfum upplifað mótlæti í heil-
an áratug. Enginn annar klúbbur hefði
getað staðið eins sterkur og við á eftir. í
dag erum við samt í úrvalsdeild með
mjög spennandi lið. Það segir kannski
meira en mörg orð um andann hérna.“
Valsblaðið 2002
31