Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 50

Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 50
Ungir Valsarar Það er ekki gott að iðka knattspymu ristarbrotin. Kristín Jóns- dóttir leikmaður 3. flokks hefur sannreynt það en hún fékk mark ofan á fótinn þegar hún og stöllur hennar voru að færa það til á gervigrasinu í Laugardal í lok nóvember. „Ég má líklega byrja að skokka aftur fyrir jól en ekki byrja í fótbolta fyrr en í febrúar. Jú, þetta er svekkjandi en það þýðir ekki að fást um það.“ Kristín, sem er 14 ára, er nýflutt í Garðabæ en ætlar engu að síður að halda tryggð við Val þótt yngri systir hennar ætli að skipta yfir í Stjörnuna. „Það kemur ekki annað til greina en að vera áfram í Val,“ segir hún. „Ég hef verið í félaginu síðan í 6. flokki, þar eru allar bestu vinkonu mínar og þess vegna kemur ekki til greina að skipta." Foreldar Kristínar em Svanhildur Þengilsdóttir og Jón Hösk- uldsson. Kristín hefur hug á því að læra læknisfræði eða við- skiptafræði en eins og margar knattspymustúlkur langar hana að sameina nám og knattspymuiðkun í Bandaríkjunum þegar fram líða stundir. „Ásthildur Helgadóttir, sem er fyrirmynd mín í boltanum, var við nám í Bandaríkjunum og það væri frábært að geta fengið dýr skólagjöld felld niður vegna knattspyrnuiðk- unar. Reyndar gæti ég líka hugsað mér að spila annars staðar en í Bandaríkjunum en þó má maður ekki fara fram úr sjálfum sér. Fyrst er að tryggja sig í sessi hjá Val, vonandi síðan landsliðinu og svo getur maður farið að hugsa lengra." — Áttu þér aðrar fyrirmyndir í boltanum en Ásthildi? „Já, Eið Smára og Guðna Bergsson. Tveir góðir Valsarar." Kristín segir að 3. flokkur hafi lent í 3. neðsta sæti á sínum riðli á Islandsmótinu en hins vegar gengið vel á hinu árlega Gothia Cup í Svíþjóð. Hún leikur sem framlínumaður en henni gekk ekki sem skyldi að finna netmöskvana í sumar, líklega sökum þess að hún var á yngra ári. „Mér gekk betur árið áður en eflaust munar um hvert ár þegar maður er svona ungur.“ — Hvað þarftu helst að bæta til að ná langt í fótbolta? „Ég hef verið að vinna í þolinu, hlaupa fyrir æflngar en eftir ineiðslin þarf ég án efa að bæta allt. Maður dettur úr spilaæf- ingu, snerpan minnkar og sjálfstraustið en vonandi verður þetta fljótt að koma til baka.“ — Hvað er eftirminnilegast úr boltanum? „Þegar við urðum Reykjavíkurmeistarar bæði A- og B- liða utanhúss og líka þegar við unnum Hauka á Islands- mótinu í 4. flokki en það var víst talið sterkasta liðið.“ — Hver stofnaði Val og hvenær? „Það var séra Friðrik og hann stofnaði líka Hauka. Ég held að hann hafi stofnað Val 1918 eða eitthvað svoleiðis, nei djók.“ Kristínu langar að sameina nám og knattspymuiðkun í Bandaríkj- unum í framtíðinni. (Mynd ÞÞ) 50 Valsblaðið 2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.