Valsblaðið - 01.05.2003, Qupperneq 37

Valsblaðið - 01.05.2003, Qupperneq 37
Eftir Guðna Olgeirsson Ólafur Már með Old boys Vals á pollamóti Þórs á Akureyri 1992. glaðværra drengja sem léku sér í skemmtilegum útileikjum eins og fallin spýta, bófahasar og fótbolta. Eftirminni- legt er þegar snjó festi haustið 1963. „Ég man eins og gerst hafi í gær þegar við krakkamir vorum að Ieika okkur á sleð- um 22. nóvember 1963, en það festi afar sjaldan snjó í Eyjum, þegar einn krakk- inn kom út og hrópaði „Kennedy forseti var skotinn.“ Krakkahópurinn tvístraðist og hættu allir samstundis leik og hlupu heim til að heyra nánar frá þessum voða- atburði. 14. nóvember þetta sama ár byrjaði Surtseyjargosið og ég man að við krakkamir fengum frí í skólanum til að fara suður á eyju að fylgjast með gosinu og mörg kvöld fórum við feðgamir í kvöldgöngu vestur að Hásteini til að fylgjast með þessu tignarlega gosi.“ Ólafur léhmeð ÞóríEyjum Ólafur ólst upp á Kirkjuvegi 57 í hverfi Þórara og æfði af kappi fótbolta og lék með Þór og á margar góðar minningar frá þeim árum. „Ég kynntist t.d. vel ná- grannafjölskyldu sem þá var nýflutt að Hvítingavegi 8 og strákunum á því heim- ili, Andrési leikara, Ólafi Þór og Ásgeiri Sigurvinssonum, en yngri bræðurnir, Ólafur og Ásgeir léku með Tý.“ Ólafur segir að strákarnir í hverfmu haft líka stofnað fótboltafélagið Vísi sem hafi leikið á spítalatúninu öllum stundum auk þess að strákamir æfðu og léku með fé- lögunum Þór og Tý. „Við lékum á kvöld- in, um helgar, eftir skóla og í matartím- um, slíkur var áhuginn. Alltaf var hörð rimma milli Þórs og Týs og þótt Ásgeir væri tveimur árum yngri en ég þá spilaði hann upp fyrir sig og var ákaflega erfíður mótherji. Þór var með frambærilegt lið á þessum árum og margir efnilegir drengir léku þar. Minnist ég þar sérstaklega æskufélaga míns Ólafs Friðrikssonar sem var leikinn og markheppinn fram- herji, hann lék síðar með Breiðablik og Guðjóns Harðarsonar og Jóns Gíslasonar sem síðar urðu leikmenn með meistara- flokki Vals. Þjálfari okkar í 5. flokki var Sævar Tryggvason, einn besti leikmaður ÍB V og síðar leikmaður og félagi í Val.“ Snemma byrjaði Valshjarta að slá í Eyjapeyjanum Ólafi fmnst skemmtilegt að rifja upp hvemig hann kynntist Val fyrst sem bam í Vestmannaeyjum. „Á berskuárunum bjó ég stóm húsi með risi og foreldrar mínir leigðu út eitt risherbergið. I því bjó maður sem hér Ásmundur Steinsson rennismið- ur, áður frægur íþróttagarpur, m.a. Is- landsmeistari í stangarstökki en ekki síður knattspymu, sem markmaður hjá Þór um árabil. Ásmundur var sonur Kristínar Friðriksdóttur systur séra Friðriks Friðr- ikssonar og hann sagði mér margar sögur af séra Friðrik og ég tók einnig virkan þátt í drengjafundum hjá KFUM í Vest- mannaeyjum og vom þessir fundir mjög eftirminnilegir. Ásmundur þessi var t.d. fenginn til að leika í marki Vals í annarri utanlandsferð félagsins sem farin var til Noregs og Danmerkur sumarið 1935 en fyrsta ferð félagsins á erlenda gmnd var árið 1933 til Danmerkur. Valur var mjög ofarlega í huga Ásmundar og þannig má segja að ég hafi fengið mitt Valshjarta. Ég hreyfst einnig af því þegar Valur kom til Vestmannaeyja að leika, búningurinn, þessi merka saga og glæst afrek, og ég hélt alltaf með Val á Islandsmóti nema þegar þeir vom að keppa við Vestmanna- eyinga. Á seinni ámm þegar þessi lið hafa leikið saman þá hef ég haft taugar til beggja liða og sagt sem svo, megi betra liðið vinna. Ég hef unað því ágætlega þegar Valsmenn hafa tapað fyrir ÍBV ef sigurinn hefur verið sanngjam.“ Tónlistin er Úlafi einniy hugleikin Ólafur fékk snemma áhuga á tónlist og hann byrjaði 1967 í unglingahljómsveit- inni Hounds og árið eftir gekk hann til liðs við Takta og lék með þeirri hljóm- sveit næstu árin. Honum er það ákaflega eftirminnilegt þegar Taktar náðu þeim árangri að vera valin táningahljómsveit ársins 1969 af gestum á geysilega fjöl- mennri útihátíð í Húsafelli þar sem hátt í Meistaraflokkur Hugins á Seyðisfirði í knattspyrnu 1982. Ólafur Már er í efri röð lengst til luegri. Þjálfari Hugins þetta sumar var Ólafur Sigurvinsson œskttfélagi úr Eyjum. Með Httgin léku þetta sumar brœðurnir Guðjón og Hilm- ar Harðarsynir sem einnig léku með meistaraflokki Vals. 20 þúsund manns voru. Þetta var tví- mælalaust stærsta stund Takta. Hljóm- sveitin leystist fljótlega upp þegar með- limir hennar fóm til framhaldsnáms. Eftir að Ólafur fluttist til Seyðisfjarðar stofnuðu nokkrir félagar danshljómsveit- ina Einsdæmi sem varð mjög vinsæl. „Á sumrin spilaði hljómsveitin á dansleikj- um fyrir austan en á vetuma var hluti hjómsveitarmeðlima í Reykjavík og stofnuðu Þokkabót. Á þessu ári eru 30 ár síðan hljómsveitin Einsdæmi kom fyrst saman og af því tilefni fór hópurinn aftur að hittast og æfa og spilaði m.a. á þorra- blóti á Seyðisfirði og í vetur höldum við áfram að æfa og spila á þorrablótum fyr- ir austan. Við emm rétt að byrja aftur“ segir Ólafur og brosir. Seyðisfjarðarárin oy knattspyrnuferill með Huyin Ólafur fluttist til Seyðisfjarðar árið 1971 þar sem eldri bróðir hans bjó og fór að Valsblaðið 2003 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.