Skutull - 30.04.1932, Síða 1
sSKUTBLL
Útgefandi: Alþýðusamband Vestfirðingafjórðungs.
X. ár.
ísafjörður 30- apríl 1932.
16. tbl.
Alþýðntrygginoar.
-0—
Frh.
Frumvarp það til alþýðutrygg-
inga, er þeir Haraldur, Hóðicin og
Vilmundur flytja, er tvímælalauat
langmerkasta frumvarpið, sem fyr-
'ir þessu þingi liggur. Nær það
jfir sjúkra-, slysa-, örorku-, elli-,
og atvinnuleysistryggingar. Til
þess er ætlast af flutDÍngsmönn-
um, að allar þessar B greinar
trygginganna verði felldar saman
í eitt kerfi og starfræktar UDdir
einni og sömu stjórn. Skulu 7
rnenn skipa stjórnina. 2 þeirra
séu skipaðir af Alþýðusambandi
Islands, 2 kosnir af vinnukaup-
endum, einn skipaður af atvinnu-
málaráðherra og 2 tilneíndir af
meðlimum frjálsu trygginganna.
Allir islenzkir rikisborgarar á
aldrinum 15 — 65 ára, sem fram-
færa sig að bálfu leyti eða meira
í annara þjónustu, eru trygginga-
skyldir skv. frv., nema árstekjur
þeirra fari fram úr 4' 00 kr., að
viðbætturn 600 kr. að auki fyrir
hvern skylduómaga.
Þó eru þeir ekki heldur trygg-
ingaskyldir, sem eiga 10 000 kr.
skuldlausa eign eða þar yEir.
Uppbæð dagpeninga hinna
skyldutryggðu er ákveðin hin
sama (5 kr.) hvort sem um er að
ræða atvinnumissi vegna slysa,
veikÍDda eða atvinnuleysis. Þó
skal tryggingin greiða 1 kr. meira
fyrir hvert barn, sem hinn tryggði
liefir á framfæii sínu umfram eitt.
Auk dagpeninganna lætur trygg-
ingin hinum tryggðu og skylduliði
þeirra í tó ókeypis læknishjálp,
þegar sjúkdóm ber að höndum.
Þá er og lyfjakostnaður greiddur
að */s hlutum ptan sjúkrahúss og
að öllu leyti i ejúkrahúsi.
Lífeyrir gamalmenna frá 6B ára
aldri og öryrkja er 900 kr. í
Reykjavík, 7B0 kr. í öðrum kaup-
stöðum og 600 kr. i sveitum fyr-
ir einhleypt fólk, en 50% hærra,
ef um hjón er að ræða. Hver sá
skal teljast öryrki, sem glatað
hefir hálfri starfsgetu sÍDni eða
meiru. Þuifi öryrki umönDUnar •
við, eða geti ekki haft ofan af
fyrir sér að neinu verulegu leyti,
hækkar lifeyrir hans upp i
1260 kr. í Reykjavik, 1050 kr. i
öðrum kaupstöðum og 840 kr.
í sveitum. Lífeyrir gamalmenna
yfir 75 ára aldur hækkar og upp
i sömu uppbæð. Gert er i frv.
ráð fyrir nokkurri uppbót, til
þeirra, er börn liafa á framfæri
sínu. Eru það 360 kr. i Reykja-
vík fyrir fyrsta barn, 300 kr. í
öðruin kaupstöðum og 240 kr.
i sveitum. Séu börnin flairi, hækk-
ar uppbót fyrir hvert þeirra um
þriðjung. Flutningsmenn ætlast
til þess, að tryggingastjórnin sjái
um. að fötluðum mönnum verði
keund störf við þeiira hæfi, og
eÍDnig só allt gert, sem unnt er,
til að forða mönnum frá að verða
öryrkjar.
Yfirleitt er það svo, að enginn
trey^tist til að inæla á móti
tryggÍDgalöggjöf. Um liitt skift-
ast skoðanirnar, hve mikla hjálp
og styrki þær skuli veita, og á
hvern hátt kostnaðinum skuli
jafnað niður. Hér er gert ráð
fyrir, að vÍDnukaupendur skuli
greiða % þostnaðar, en iikið,
sveita- og bæjafótög 2/b til sam-
ans.
Um tryggingamálin verður al-
þýða öll til sjávar og sveita að
fylkja sór, þvi ekkert mál hefir
ennþá komið fyrir Alþingi ls-
lendinga, sem meiru varði fyrir
hagsmuni og farsæld þjóðarmeiri-
hlutans.
iL'bli'agið!
Frá og með 1. mai kostar ný-
mjólk 40 aur. ltr. i Norska-
bakaríinu.
Yerklýðsmál.
-0—
Ycrklýðsfélng Álftdrðlngn
hefir Dáð samningum við Sigurð
Þorvarðsson á Langeyri. Er kaup-
gjald saraa og i fyrra, enda höfðu
aðrir atvinnurekendur i Súðavík
ekki óskað breytinga á samning-
unum við fólagið.
Verklýð-fólng: BoIung'nTÍkur
er stöðugt að auka félagatölu
sína. Nú eru í félagrau 93 félag-
ar, en rneð sama vexti og að
undauförnu, verður þess ekki
langjb að biða, að fólagatalan
komist á anDað hundraðið.
Nú eru í þann veginn að
byrja atvinnurekstur i Bolunga-
vik þeir Bjami Fannberg og
Högui Gunnarsson i félagi. Hafa
þeir fólagar ekki enDþá viljað
undirskrifa samnÍDga við fólagið,
en þeir munu sanDa, að ekki er
eftir betra að bíða og eDgin ábata-
von af því, að þverskallast við
jafn sanngjörnum kröfum og fó-
lagið fer fram á. Þess ber að
geta, að fólagið lagði fyrst til
grUDdvallar fyrir samningaumleit-
unum við atvinnurekeDdur kaup-
taxta, er þeir höfðu sjálfir samið,
en síðan hefir fólagið tvisvar
slakað til á samningnum, til þess
að fá fiiðsamlega úrlausn deilu-
málanna við vinnukaupendur. En
Högni og Bjarni kunna ekki að
meta slika saDngirni, og er þá
ekki annað fyrir hendi, en gripa
til áhrifarikari úriæða til skiln-
ingsauka.
1. maí.
Hátíðahöldin á morgun hefjast
kl. 3% e. h. Verða þá fluttar
nokkrar stuttar ræður af svölunum
hjá Jónasi Tómas9yDÍ. — Kvik-
myndasýning verður kl. B og
fjölbreytt kvöldskemmtun í templ-
arahúsinu, er hefst kl. 8V2 síðdegis.
Merki verða seld allann daginn.