Skutull

Årgang

Skutull - 30.11.1940, Side 4

Skutull - 30.11.1940, Side 4
164 S K U T U L L Reynslan sannar, að það er töluvert ódýrara að nota þéttimó frá Kristjáni H. með kolum, en kol eingöngu. 1. desember-fagnaður. Félag Aiþýðuflokksins efnir til 1. desember-fagnaðar í al- þýðuhúsinu laugardaginn 30. nóvember kl. 9. Til skemmtunar verður: 1. Ræða: Hannibal Valdimarsson. 2. Upplestur: (oý saga) Guðmundur G. Hagalín. 3. Einsöngur: Tryggvi Tryggvason. 4. Upplestur (kvæði): Þórleifur Bjarnason. 5. Dans. Allt Alþýðuflokksfólk velkomið, meðan húsrúm leyflr. Aðg. 1. kr. Félagsstjórnin, Manntal. Manntal það, sem samkvæmt lögum á að fara fram á lOára fresti, fer fram mánudaginn 2. des. n. k., og hefst kl. 91/2 árdegis Er heitið á alla bæjarbúa að taka teljurunum vel og greiða götu þeirra í hvivetna. Bæjarstjórinn á ísafirði, 30. nóv. 1940. Þorsteinn Sveinsson. Þökkum auðsýnda samúð og hiuttekningu við andlát og jarðar- för Sigriðar Borgarsdóttur. Sérstakiega viljum við þakka frú Sigriði Guðmundsdóttur aila hjálp hennar. ísafirði, 26. nóv. 1940. Eiginmaður, börn, tengdabörn og barnabörn. Öllum þeim, sem á einn eða annan hátt auðsýndu okkur sam- úð við fráfall og jarðarför konu minnar og móður okkar, Önnu Jónsdóttur, færum við hjartans þakklæti. Höskuldur Árnason og börn. Hjartans þakklæti fyrir auð- sýnda hjálp og aðstoð við and- lát og jarðarför móður, tengda- rnóður og ömmu okkar, Elínar Jónsdóttur. Fyrir mína hönd og annara aðstandenda. Kristjana Jónsdóttir. Jarðarför konunnar minnar, Rannveigar Hákonardóttur, fer fram þriðjudaginn 3. des. næstk. og hefst með húskveðju að heim- ili okkar, Silfurgötu 14, kl. 1 e. h. Eyjólfur Bjarnason, Unglingsstúlka, 14—16 ára, óskast til Reykja- víkur til þess að gæta 2ja ára barns. Upplýsingar í sima 38. er stundum hreint og beint glæsi- legur. Sumar lýsingar hans á ís- lenzkri náttúru eru skáldlegar, sannar og fagrar. . ,. Eq svo eru gallarnir! Mál- hnjótar eru þarna ýmsir, en þó eru þeir hverfandi bjá stafvillum og rangri notkun lesmerkja. Ég held ég hafi beinlínis hvergi séð annað eins samsafn af þesskonar óþverra og í þessari bók. Ég byrjaði ekki að merkja við stafvillurnar fyrr en ég hafði lesið þó nokkuð margar síður. Samt merkti ég við mikið á annað hundrað stafvillur, og reyndi ég þó að merkja ekki nema einu sinni við þær, sem komu fyrir tvisvar eða oftar. Lasmerkjavill- urnar skipta áreiðanlega þúsund* um! Hér eru þá fyrst nokkur dæmi um notkun höfundar á lesmerkj- um: Bls. 66: „Fórst það þó fyrir og var þvi um kennt að ekki hafl Sími 123. Barnabækur. Ljóti andarunginn m. myndum. Hjónin á Hofi, barnavisur. Sandhóla-Pétur, III. h. íslenzkar bækur. Rit Jóhanns Sigurjónssonar. Ströndin blá, Kristmann Guðm. Sumar á fjöilum, Hjörtur Björns- son frá Skálabrekku. Áraskip, Jóhann Bárðarson. Ritsafn Jóns Trausta II. Sólonlsiandus, Davíð Stefánsson. Amma III. Þjóðsagnasafn eftir Finn Sigmundsson. Perusarrimur, Bólu-Hjálmar. Hver var að hlæja? Ýmsar bækur. Leyndardómur yndisþokkans. Þingvellir I myndum. Fimm sönglög e. Árna Björnsson. 30 taps og eyðsluliðir. Þýddar bækur. Forlagaleikur I.—II. Bókin um litla bróður. Stjórnmálakúgun, skriffinnska, skattakúgun. Hvalveiðar í Suðurhöfum. Æfisaga Churchill. ívar Hlújárn. Ágrip af sögu Bretlands. Hinn ósigrandi. Hulda. Þýddar sögur. Hundrað prósent kvenmaður. Verið þér sælir, hr. Chips. hann stillt orðum sínum í hóf er hann ræddi við skólameistarann og hafi báðir orðið reiðir." Frek- ast mætti nú telja þetta dæmi um hlífð höfundar við lesmerkin. Bls. 73: „... og héldum við upp með Fúlukvísl og að upptökum hennar, þar sem hún kemur i mörgu lagi undan skriðjökulstung- um Langjökuls. Nema nyrzta kvíslin sem á upptök sín“ o.s.frv. Bls. 155: „ .. . en beltið hafði ég keypt í ómerkilegri verzlun í Reykjavík, enda var það, það sem sveik mig“. Bls. 173: því þar sem ekki eru klappir jafnar, sandurinn yfir öll spoi“. Stafviliur: Byggingarleyfa, á að vera bygg- ingarleifa, sem þýðir dálítið annað, sytra — fyrir sitra, Eiríksjökull — fyrir Eiríksjökul, leyði — fyrir leiði, hraunglingslegar — fyrir hrönglingslegar, sólskyni — fyrir sólskini.geymnum —fyrirgeimnum, Til sölu steinhús á Flateyri, ein eða tvær ibúðir, eftir ástæð- um. Góðir greiðsluskilmálar. Upplýsingar gefur Hjörtur Hjálmarsson Flateyri. Hús til sölu. íbúðarhús I Hnifsdal, ásamt úti- húsum, er tii sölu. Upplýsingar gefur. Guðmundur Guðmundsson Aðalstræti 22, ísafirði. ættla — fyrir ætla, hlægja — fyrir hlæja, reyf — íyrir reif, leytum — fyrir leitum, laggði — fyrir lagði, hýbýli — fyrir híbýli, afbrygðum — fyrir afbrigðum, ríf- ur — fyrir iýfur, eginlega — fyrir eiginlega, annarstsaðar — fyrir annars staðar, vesæla — fyrir vesala, voveifllega fyrir voveiflega. Þetta er aðeins til bragðs af nokkr- um síðum. Þá er hérna til athugunar máls- grein, sem sýnir nokkuð greini- lega, hve jafnágætlega ritfær mað- ur og höfundurinn er í raun og veru, getur verið mikiil hnoðari, þegar sá gállinn er á honum: nÞeim sem vilja ganga á Ei- ríksjökul, skal á það bent til leið- beiningar, til að Ienda ekki í tor- færum í álmu þeirri af Hallmund- arhrauni, er runnið heflr suður milli Strúts og jökuis og verður aðn fara yfir, skal haldið inn með Strútnum ...“ Nokkrar málvillur: Var — fyrir voru, höndur — fyrir hendur, ijeðist fyrir réðst, dularfullu kyngi — fyrir dular- fullri kyngi. Nú nenni ég okki að tína meira af þessum ávöxtum, en svo viið- ist, sem höíundurinn sé jafn illa að sér í réttritun eins og hann er óhæfur prófarkalesari, og setj- ari sá, sem bókina hefir sett, hlýtur að vera einstakur í sinni stétt. Það er og greinilegt, að út- gáfustjórinn hefir ekki litið í bók- ina, áður en hún var send til bóksala, því þá trú hefl ég á Gunnari Einarssyni, forstjórá ísa- foldarprentsmiðju, • að ég þykist vita, að þessa bók heíði hann ekki sent frá sér, ef hann hefðiathugað fráganginn á henni. í rauninni væri það langréttast og ekki nema mátulegt hirðulaus- um höfundum og kærulausum eða um of önnum köfnum bókaútgef- endum, að bækur, með slíkum frágangi sem þessar, væru gerðar upptækar, þar sem þær mega teljast gera bókmenningu okkar skömm og vera börnum og ung- lingum allt annað en fyrirmynd um góða stafsetningu og vandað- an frágang á rituðu máli. Guðmundur Gíslason Hagalfn. Magnús Kárason, verkamaður hér í bæ, varð 70 ára í fyrradag. Magnús hefir alltaf verið hinn mesti iðju-, reglu-, vöndunar- og drengskaparmaður. Hann er enn sístarfandi og ern vel. Hann er við störf hjá Samvinnu- félagi ísflrðinga. Vinir hans óska honum allra heilla. Messað verður á morgun kl. 2. Um bann Breta verður ýtarleg grein í næsta blaði.

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.