Skutull - 01.04.1949, Page 1
XXVII. árg. tsafjörður, 1. apríl 1949. 13. tölublað.
Aflantshafsbandalagið.
Þáfftaka íslands ákveðin.
Alþingi samþykkti s.l. miðvikudag eftirfarandi tillögu
til þingsálykunar, sem ríkisstjórnin bar fram:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gerast stofn-
aðili fyrir Islands hönd að Norður-Atlantsliafssamningi
þeim, sem fulltrúar Bandaríkjanna, Belgíu, Bretlands,
Fralddands, Hollands, Kanada, Luxemburg og Noregs
hafa orðið ásáttir um og þrentaður er sem fylgiskjal með
ályktun þessari.“
Ályktun þessi var samþykkt eftir sögulegar umræður
með 37:13 atkvæðum, en 2 alþingismenn sátu hjá.
Skýrsla ráðherranna.
Svo sem frá var skýrt í síðasta
blaði samþykkti meirihluti mið-
stjórnar og þingflokks Alþýðu-
flokksins yfirlýsingu þess efnis, að
Island skyldi gerast aðili að At-
lantsliafsbandalaginu, og var Alþ.fl.
fyrstur stjórnarflokkanna til að'
taka ákveðna afstöðu til málsins
eftir lieimkomu ráðherranna
þriggja frá Washington. Vegna
þess, live skýrsla ráðherranna hef-
ur mikla þýðingu, telur blaðið rétt
að birta hana í heild, og geta menn
lesið liana á öðrum stað í blaðinu.
Utvarpsumræður um
vantraust.
Kommúnistar báru fram í þing-
init vantrauststillögu á ríkisstjórn-
ina, og byggðu þeir vantraust sitt,
svo sem vænta mátti, aðallega á
því, að þeir telja Island sýna Sovét-
ríkjunum fjandskap með því að
ganga í Atlantshafsbandalagið, og
kom þetta gréinilega fram í útvarps
umræðunum. 1 framsöguræðu sinni
fyrir vantrausfinu varði Brymjólfur
Bjarnason tæplega % af tíma sín-
um til að ræða innanríkismál, en
ölluin hinum tímanum til að verja
ímyndaða hagsmuni húsbænda
sinna í Moskvu. Sérstaka athygli
hlustenda vöktu hótanir þessa úti-
bússtjóra Rússa í garð pólitískra
andstæðinga sinna, sem ltann sagði
að yrðu meðhöndlaðir sem kvisling
ar, og „þurrkaðir út,“ ef þeir sam-
þykktu, að Island skyldi ganga í
Atlantshafsbandalagið. Reyndi
Brynjólfur þó jafnframt að þvo sig
•af því, að hafa sagt, að hér mætti
skjóta án miskunnar, ef þáð aðeins
kæmi Rússum að gagni, og floklcs-
bróðir hans, Sigfús Sigurlijartarson
reyndi að hjálpa ltonum með því
að lesa upp hluta af þessum um-
mælum B.B. úr Alþingistíðindum.
Ólafur Thors las þá upp framhaldið
og sannaði tilvitnunina svo ræki-
lega, að kommarnir slepptu sér, og
urðu sér til skammar frannni fyrir
alþjóð.
Ræðumenn stjórnarflokkanna
ræddu vantraustið á þeim grund-
velli, sem kommúnistar hösluðu,
enda þótt þeir viðurkenndu, að
ekki væri vanþörf á að ræða innan-
ríkismálin, og boðaði forsætisráð-
herra, Stefán Jóhann Stefánsson,
umræður um þau í sambandi við
afgreiðslu fjárlaga. Er það yfirleitt
mál manna, að kommúnistar hafi
farið hinar verstu hrakfarir í um-
ræðum þessum.
Umræður um Atlants-
hafsbandalagið.
Fyrri umræða um tillögu ríkis-
stjórnarinnar fór svo fram á þriðju
dag og hófst kl. 10 f.h. í sameinuðu
þingi, og stóð til kl. 21 um kvöldið,
en var þá vísað til annarrar um-
ræðu og utanríkismálanefndar. Um
miðnætti skilaði nefndin áliti, og
var þríklofin. Að áliti meirihluta
nefndarinnar, sem var á þá leið að
tillagan skyldi samþykkt óbreytt,
stóðu: Ásgeir Ásgeirsson, Ólafur
Thors, Jóhann Hafstein og Gunnar
Thoroddsen. Séráliti skiluðu Her-
mann Jónásson og Páll Zóphaníus-
son og loks var Einar Ollgeirsson
einn um sérstakt nefndarálit.
Síðari umræða hófst kl. 10 ár-
degis á miðvikudag og lauk um kl.
14,30 með samþykkt tillögunnar,
svo sem fyrr greinir. Breytingar-
tillögur komu fram frá Gylfa Þ.
Gíslasyni og Hannibal Valdimars-
syni, Hermanni Jónassyni og Skúla
Guðmundssyni, og loks frá Einari
Olgeirssyni. Breytingartillögur
Gylfa og Hannibals fólu í sér, að
nánar skyldi fram tekið, að Islend-
ingar væru vopnlausir, vildu hér
ekki herstöðvar á friðartímum, og
vildu taka Keflavíkurflugvöll í sín-
ar hendur.
Breytingartillögur Framsóknar-
manna voru svipaðs efnis, en fólu
auk þess í sér, að þjóðaratkvæða-
greiðsla skyldi látin fram fara um
inálið. Einar Olgeirsson vildi að
öll stórveldin yrðu beðin að viður-
kenna lilutleysi Islands, og enn-
fremur vildi hann þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Atkvæðagreiðslur.
Uin vantraustið féllu atkvæði
þannig að það var fellt með 37:9
atkvæðum. Með því voru þingmenn
kommúnista, en 5 þingmenn úr
sljórnarflokkunum sátu hjá: Gylfi
Þ. Gíslason, Hannibal Valdimars-
son, Hermann Jónasson, Skúli Guð-
mundsson og Páll Zóphaníasson.
Breytingartillögur þær, við þings
ályktunartillögu ríkisstjórnarinnar
um þátttöku í Atlantshafsbandalag-
inu, er að ofan getur, voru allar
felldar með svipuðum atkvæðamun
og kom fram við samþykkt tillög-
unnar sjálfrar.
Þeir, sem endanlega greiddu at-
kvæði gegn ályktuninni, auk
koinmúnista, voru: Gylfi, Hannibal,
og Páll Zóphaníusson, en hjá sátu
þeir Hermann og Skúli.
Árás á Alþingishúsið.
Meðan Atlantsliafsbandalagið var
rætt í þinginu á þriðjudag og mið-
vikudag efndu kommúnistar til ó-
spekta og uppþota, sem sýndu
greinilega, að þeir meintu alvarlega
þá liótun sína, að hindra Alþingi
með ofbeldi í að samþykkja þátt-
töku Islendinga í bandalaginu. Á
þriðjudagskvöld söfnuðust 400—
500 manns saman á Austurvelli og
í grend. Hópurinn var yfirleitt
stilltur, segja sunnanblöðin, nema
flokkur ungkommúnista, sem kast-
aði eggjum og grjóti í þinghúsið og
brutu þar rúður. Einnig voru rúður
brotnar 1 Sjálfstæðishúsinu. Til al-
varlegri tíðinda dró á miðvikudag.
Boðuðu þá kommúnistar til úti-
fundar við Miðbæjarbarnaskólann
í nafni Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna og Dagsbrúnar, án leyfis lög-
reglunnar, og mikill mannfjöldi
kom saman á Austurvelli. Var meg-
in þorri þess fólks þangað kominn
að áskorun formanna þingflokka
stjórnarflokkanna þriggja, til að
standa vörð um friðhelgi Alþingis,
gegn ærslasveitum koramúnista.
Ennfremur stóð lögreglan vörð um
Alþingishúsið ásamt varaliði, og
hafði lögreglan kylfur og táragas
að vopnum, en varalið hennar kylf-
ur. Margt bendir til þess, að ætlun
lcommúnista hafi verið sú að hrekja
þingmenn frá störfum sínurn, en
vegna þess viðbúnaðar, sem hafð-
ur var, gripu þeir til þess ráðs að
dreifa sér innan um mannfjöldann
og hófu þeir skothríð að þinghús-
SKUTULL
VIKUBLAÐ
Utgefandi:
Alþýðuflokkurinn á Isafirði.
Innheimtumaður:
Haraldur Jónsson
Þvergötu 3, Isafirði.
inu með eggjum, grjóti og moldar-
linausum. Er þar skemmst af að
segja, að lögreglan sá sig tilknúða
til að ryðja Austurvöll og nota til
þess táragas og kylfur, og munu
sviptingar hafa orðið allliarðar, því
13 manns urðu að láta gera að sár-
um sínum á sjúkrahúsum, og sagt
er, að einn lögregluþjónn muni
vera höfuðkúpubrotinn en annar
mjaðinarbrotinn. Flestar rúður í
þeirri hlið Alþingishússins, er að
Austurvelli veit, munu vera brotnar
og rigndi glerbrotum og kastvopn-
um kommúnista yfir þingmenn og
starfsfólk í húsinu. Tveir þing-
menn eru sagðir hafa lilotið áverka,
annar glerbrot í auga en hinn
skrámu á hendi.
Ný skrílslæti hófust í miðbænum
i Reykjavík um kl. 22 á miðviku-
dagskvöld, og réðist nú múgurinn
að lögreglustöðinni með grjótkasti
og sprengjum. Handtók lögreglan
nokkra spellvirkjanna, og voru sum
ir þeirra með dynamitsprengjur á
sér, sem þeir voru hindraðir í að
varpa.að mannfjöldanum. Sagt er,
að kommúnistaleiðtoginn Stefán
ögmundsson hafi stjórnað aðför-
inni að Alþingi úr jeppa útbúnum
með gjallarliorni. Stóð jeppi þessi
R-6156, framan við Hótel Borg og
kallaði Stefán fyrirskipanir sínar
þaðan til skrílsins.
Með þessum aðförum hafa komm-
únistar sýnt á sér hið rétta andlit,
en þjóðin öll fordæmir ofbeldi
þeirra og hina svívirðilegu árás á
friðhelgi Alþingis. Þeir menn, sem
taka sér samstöðu með slíkum skríl,
eru sannarlega ekki öfundsverðir
af félagsskapnum.
-------0------
Togaradeilan
leyst.
Sáttatillaga sú í togaradeilunni
er sagt var frá í síðasta blaði hlaut
samþykki sjómannafélaganna í
Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi,
Isafirði, Siglufirði, Akureyri og
Seyðisfirði. Utgerðrmenn sam-
þykktu tillöguna með 36:9 atkvæð-
um. Á Isafirði féllu atkvæðin þann-
ig að 31 sagði já, en 4 nei. Á fjór-
um stöðurn var tillagan felld af sjó-
mönnum, en hún síðan samþykkt
við endurtekna atkvæðagreiðslu
nema á Patreksfirði, sera er eini
staðurinn þar sem ennþá er ósam-
ið við útgerðarmenn togaranna. Tíu
togarar eru nú farnir á veiðar og
sex til viðbótar fara af stað um
helgina. Togarinn Isborg var 18
skipið í röðinni og mun hún því
ekki fara á veiðar á ný fyrr en í
miðri næstu viku.