Skutull

Árgangur

Skutull - 14.10.1949, Síða 1

Skutull - 14.10.1949, Síða 1
XXVII. árg. Isafjörður, 14. október 1949. i---—•—*—^ Gjalddagi SKUTULS var 1. júlí. Árgangurinn kostar kr. 20.00. 31.—32. tölublað. Avarp til Norður-lsfirðinga. Hannibal Valdimartsson. Góðir Norður-lsfirðingar! Ég var lengi vel í miklum vafa um það, hvort ég ætti að vera í framboði að þessu sinni eða ekki. Mér var sem sé ljóst, að vera mín á þingi næsta kjörtímabil mundi sennilega kosta mig það, að ég yrði fyrir fullt og allt, að afsala mér því skólastarfi, sem ég liefi haft á hendi nú uin röskan áratug og mér er orðið bæði hugljúft og kært. Hinsvegar leit ég svo á, að ég hefði með framboði inínu 1940 liéi í sýslu, tekizt á hendur verulegar skyldur gagnvart liví fólki, sem þá veitti mér, órcyndum sem þing- manni, allmyndarlegt brautar- gengi. Mér fannst sem væri það skylda mín að fá úr því skorið, hvort ennþá væri borið traust til mín, og þá eins, hvort það traust hefði minnkað eða vaxið. Kæmi það í ljós, að það hefði þorrið á þeim þremur árum, sem ég hefi nú átt sæti á þingi, mátti fyrst segja að ég gæti talizt laus allra mála, en leiddu þessar kosningar hinsvegar í Ijós, að mér væri sýnt vaxandi traust í kjördæminu, mátti svo telj- ast sein ekki væri með öllu drengi- legt af mér að lilaupast brott frá þvi. Af þessum sökum ákvað ég að ganga undir dóin kjósenda í Norð- ur-lsafjarðarsýslu í þetta sinn. Niðurstaða þessara kosninga leiðir því til annars tveggja — að ég tel mig skyldum bundinn við kjósendur þessa kjördæmis og hika þá ekki við að fórna einhverju fyrir það — eða hins, að ég sé'laus allra mála og geti aftur snúið heils hugar að skólastarfi mínu. Þessi kosning sker úr um allmörg atriði, og tel ég þessi hin helztu: 1. ViII frjálslynt fólk i Norður- Isafjarðarsýslu, að Alþýðuflokkur- inn og Framsóknarflokkurinn dúsi áfram í stjórnarsamstarfi við íhald ið? Sé það vilji Norður-ísfirðinga, væri ekki óeðlilegt að fylgi mínu lirakaði nokkuð. En sé það hins vegar svo, að á- framhaldandi ílialdssamvinna sé fylgismönnum mínum lítt að skapi, þá þarf sá vilji að koma í ljós á ótvíræðan hátt með traustum stuðn- ingi við mig og vaxandi fylgi. 2. Ef það- er vilji kjósenda í Norður-lsafjarðarsýslu, að almætti flokksræðisins eigi að vera friðheil agl fyrirbæri, sem engum megi haldast uppi að krenkja eða rísa gegn — ])á bæri mér að sætta mig við hrakandi fylgi. En sé það liinsvegar svo, að kjósendur í kjördæminu vilji heim ila þingmanni sínum að varðveita einhvern svolítinn snefil af and- legu sjálfstæði, þótt ekki væri nema i þeim málum sem ekki geta talizt ílokksleg stefnumál — þá tel ég upp á, að sá dómur kjósendanna ætti að staðfestast og innsiglast með auknu fylgi mínu. 3. Ef Norður-Isfirðingar eru æstir hernaðarsinnar og vilja, að Island sé dregið sem lengst inn í alþjóðlegt hernaðarsamstarf stór- velda, þá á ég lítið fylgi að fá í þessum kosningum. En ef alþýðufólk við Djúp gerir þá kröfu til fulltrúa síns á Alþingi, að hann sé vel á verði gegn öllu því, sem dregið gæti Island nær blóðvelli styrjaldanna — vil ég halda því fram, að aukið fylgi mér til handa sé rökrétt afleiðing af- stöðu minnar til utanríkismála á liðnu kjörtímabili. (Keflavíkur- samningur — Atlantshafsbandalag) 4. Ef Norður-lsfirðingar óska eftir auknu áfengisflóði yfir land og þjóð, og telja allt of miklum erf- iðleikum bundið fyrir yngri og eldri — karla og konur, að drekka frá sér vit og manndóm, verður fylgi mitt að sjálfsögðu harla lítið og ekki að efa, hvert það rnundi leita halds og trausts. En ef kjósendum þessa kjördæm is kynni hinsvegar að finnast nóg um áfengisneyzlu landsmanna og vildu að Alþingi réði bót á böli liennar, ])á væri ekki úr vegi, að alvarlega hugsandi kjósendur, leyfðu sér að gera upp á milli mín og fyrsta flutningsmanns ölfrum- varpsins, sem þjóðin mótmælti kröftuglegar en nokkru öðru ó- lieillamáli, sem skotið hefir upp kolli á Alþingi Islendinga — ríkis- lögreglan á sínum tíma ekki undan skilin. 5. Ef alþýðan í Norður-lsafjarð- arsýslu trúir á blessun gengislækk- unar sem Jækningu dýrtíðarmál- anna, á ég lítið fylgi að fá, þar sem ég er í kjöri fyrir flokk, sem lieitið hefir að berjast af alefli gegn henni, og er auk þess sjálfur vita- trúlaus á lækningarmátt þeirrar „eitursprautu". Væri svo, ættu frambjóðendur Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins í kjör- dæminu að raka að sér fylgi kjós- eiulanna, þar sem þeir eru fulltrú- ar gengislækkunarliðsins í landinu. En væri nú alþýða manna and- stæð því, að íslenzk króna verði gerð að fimmeyringi, sparifé ráð- deildarfólksins af því tekið, og ellilaun, örorkubætur, sjúkra- og slysabætur o.s.frv. rýrð að kaup- mætti ásamt launum verkafólks og allra launamanna — þá ætti ég sem eindreginn andstæðingur þess- arar skotlulækningatilraunar að fá sterkan meirihluta kjósenda í sýsl- unni. (i. Ef dugnaður Sigurðar Bjarna sonar, raunhæfni hans og ósér- plægni er að dómi kjósendanna iniklu sterkari í fari hans, en sams- konar eigindir inínar, ber inér ekki að kvarta undan minnihluta- trausti af þeirra hendi — en að öðrum kosti mætti ætla, að dóms- úrskurður kjördagsins yrði mér ekki óhagstæður. Mörgu fleiru mætti hér við bæta. En er hér ekki þegar komið nokk- urt efni sem vert sé að hafa til hliðsjónar, þegar krossinn merkist á kjörseðlum 23. eða 24. október. Mín Iokaniðurstaða af þessum hugleiðingum er svo sú, að ef það kemur enn í ljós, að íhaldið og . frainbjóðandi þess njóti trausts mikils meirihluta kjósendanna í Norður-lsafjarðarsýslu, þá sé þarf- laust með öllu að senda uppbótar- mann til Alþingis með slíku átrún- aðargoði. Minnist svo þess að síðustu, kjósendur góðir, að ég hefi hvorki fé eða fríðindi að bjóða ykkur fyrir þessar kosningar. Ekki heldur nokk ur gullin kosningaloforð. Ég hefi aðeins eitt að bjóða, starfsorku mina og stefnu þá sem ég gekk ungur á hönd — LÝtíRÆfítSJAFN- AtíARSTEFNUNA. Ég treysti á framtak fylgismanna minna og áhuga fyrir kosningunni, því að launað starfslið hefi ég ekki í þjónustu minni eins og aðalkeppi-

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.