Skutull

Árgangur

Skutull - 26.05.1950, Blaðsíða 3

Skutull - 26.05.1950, Blaðsíða 3
S K U T U L L 3 Alyktun urn símamál. Um alla Vestfirði eru menn ó- ánægðir með símann og starf- rækslu hans, og mú búast við að síðasta gjaldahækkunin verki eins á Vestfirðinga og skenimda mjölið sem Hörmangarar seldu forfeðrum okkar um árið. Á aðalfundi sýslu- nefndar Vestur-lsafjarðarsýslu, sem nýlega var haldinn á Uingeyri, var samþykkt svofelld ályktun: „Aðalfundur sýslunefndar Vest- ur-lsafjarðarsýslu átelur harðlega, að ekkert er gert til þess að bæta úr þeim vandkvæðum, sem eru á Kaupfélagið 30 ára. Framhald af 1. síðu. inga munu nú vera orðnir rétt um eitt þúsund. —- Sjóðseignir félags- ins eru ca tvær miljónir króna og vörusala á s.l. ári mun hafa verið fast að tíu miljónum króna. Samkvæmt athugun, sem Ketill Guðmundsson, kaupfélágsstjóri, hefur gert, eru félagsmenn og það fólk, sem þeir hafa á framfæri sínu um 3900 manns, en alls eru íbúar ísafjarðarkaupstaðar og Norður- Isafjarðarsýslu um 5000. I’að lætur því nærri að ff, ibúanná á félags- svæðinu hafi meginviðskipti sín við Kaupfélag Isfirðinga. Með rökum verður þannig ekki sagt, að ísfirðingar séu slakir sam- vinnumenn. Takmarkanir fjárliagsráðs á byggingarframkvæmdum hafa orð- ið Kaupfélagi Isfirðinga þröngur fjötur um fót á seinustu árum, enda bíða félagsins nú margvíslegar byggingaframkvæjmdir, sem naum- ast verður skotið á frest miklu leng ur. I Þá hcfur vöruskorturinn á seinni árum dregið mjög úr eðlileguin vexti félagsins, og er það sama sagan, sem öll vaxandi kaupfélög kannast við og hafa orðið að kenna harðlega á að undanförnu. En þrátt fyrir erfiðleika yfir- standandi tíma horfa kaupfélags- menn í bæ og sýslu öruggir fram á við. Félag þeirra er fjárhagslega vel á vegi statt og það nýtur fyllsta traust verkafólks, sjómanna og bænda. Óánægjuefni félagsmanna er það eitt, að ekki sé hægt að leysa verkefnin, sein færast í fangið og bíða úrlausnar með nægileguin hraða. Slík óánægja er hverjum félagsskap mikill styrkur en ckki veikleiki. Kaupfélag Isfirðinga liefur jafn- an liaft mikil skipti við Samvinnu- félag lsfirðinga, fyrsta útgerðar- samvinnufélagið, sem stofnað var á Islandi. Kaupfélagið hefur líka stutt að stofnun og rekstri útgerðarfé- laganna Njarðar á Isafirði, And- vara í Súðavík og Víkings í Bol- ungarvík og inarg oft rétt atvinnu- Hfinú á félagssvæði sínu hjálpar- hönd, ekki sízt þegar mest hefur að kreppt. Samvinnustarfið er orðið örlaga- jjráðurinn í lífi Isfirðinga og Norð- ur-Isfirðinga. Og í samstarfi w'ð verkalýSslireyfinguna, en ekki í strifii vifi liana, mun fólkið í þess- um landshluta byggja sjálft upp efnalega framtíð sína á félagslegum grunni. Á liðnum áratugum hefur ís- lenzkri alþýðu lærzt til lilítar, að þar er engum öðruin að treysta. Hannibal Valdimarsson. símasainbandi Vestfjarða við aðra landshluta og innan liéraðs, og krefst þess, að þegar verði hafist handa u m eftirtaldar úrbætur, sem bent var á af fundinum 1948: 1. a. Fjölgað verði línum milli Isa- fjarðar og Borðeyrar og þær útbúnar með mögnurum, eins og nú á sér stað um austur- landslínurnar. b. Ritsímasambandi verði kom- ið á milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur um Barðastranda sýslu. VestfjarSalínan. 2. a. Tvöfalduð verði a.m.k. loft- linan milli Isafjarðar og Pat- reksfjarðar. b. Lagðar verði sérstakar loft- línur í viðból frá Isafirði til þeirra staða í nágrenninu, sem mesta símanotkun hafa, og svokallaðar huldulínur séu notaðar lil almennrar síma- þjónustu, þegar annars er ekki kostur. Símakcrfi innan hérafis. 3. a. í kauptúnum verði lagður jarðstrengur, svo fljólt sem verða má. b. Kappkostað verði að full- nægja eftirspurn uin síma- tæki. Síðast en ekki sízt krefst fundur- inn þess, að símakerfinu verði haldið við á annan og betri hátt en nú hefir verið um margra ára skeið,“ Þannig hljóðar þessi ályktun Vestursýslunga, og virðasl þeir stilla kröfum sinum mjög í hóf. — Það væri heldur ekki nein frekja, þótt bæjarstjórn Isafjarðar krefð- ist þess, að hér væri tafarlaust sett upp nýtt og fullkomið skiptiborð, í stað jiess gamla, sem viðurkennt er að sé ónýtt, og margt fleira væri þörf á að lagfæra hjá símanum, sem ekki verður rakið hér. ---------O-------- IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1IIIIIIIIIIII1IIIIIIHIIIIIII B 1 Ó ( Alþýðuhússins | Sýnir: | Annan í Hvítasunnu | kl. 5 og 9 Suðrænir söngvar (Song of the South) | Amerísk teikni- og | | söngvamynd í eðlilegum | | litum, gerð af snillingn- | um WALT DISNEY. | Aðalhlutverkin leika: RUTH WARRIKK ERIC WOLF ROBBY DRISCOLL. I '11111111IIIII111111 ■ 11 ■ 11111 ■ 11111111 ■ 111 11111111 ■ 11 ■ || 111 ■ 1111111 (111 |7l Kvenreiðhjól óskast. Uppl. í prentsmiðjunni. Afmæli. Þann 17. þ.m. átti Guðrún Björns- dóttir, Hafnarstræti 2, 75 ára af- mæli. Guðrún er vinsæl dugnaðar- kona, sívinnandi og glöð í viðmóti. Skutull óskar henni til hamingju. Flugvél setzt á Skipeyri. Landflugvél lenti hér í fyrsta skipti s.l. mánudag. Var það tveggja sæta vél, sem settist á Skipeyri með einn farþega. Flugmaður var Björn Pálsson, en farþeginn var Kristján Lárusson, framkvæmdastjóri. Leiörétting. Þegar getið var um 70 ára afmæli Ólínu Guðmundsdóttur í síðasta blaði var sagt, að hún liafi gegnt ljósmóðurstörfum í 12 ár í Reyk- hólasveit. Þetta var ranghermt. Ól- ína var ljóðmóðir í Múlasveit, en ekki í Reykhóíasveit. Hvítasunnumól. I.B.l. gengst fyrir Hvítasunnu- móti í frjálsum íþróttum um næstu helgi. Verður þar keppt í hlaupum, stökkuin og köstum. Meðal kepp- enda verða kúlu- og kringlukastar- inn GUNNAR HUSEBY, ásamt hlauparanuin Ásmundi Bjarnasyni og hástökkvaranum Sigurði Frið- finnssyni og Islandsmeistaranum í langstökki og stangarstökki, Torfa Bryngeirssyni. Verður fróðlegt fyrir íþróttamenn okkar að bera sig saman við sunn- anmennina, og þarna gefst bæjar- búum einstakl tækifæri á að sjá heimsfrægan kúluvarpara ásamt spennandi keppni. Róörar og aflabrögö. Flestir bátar héðan liættu róðr- um í maíbyrjun. Pólstjarnan ein réri fram eftir mánuðinum, en er nú liætl. Á togveiðum eru Isbjörn, Auðbjörn, Hafdis, Freydís og ís- lendingur og er afli þeirra misjafn. Trillubátum hefir fjölgað, og afla þeir sæmilega í Djúpinu á kúfisk- beitu. B.v. Isborg saltar afla sinn, og b.v. Forseti lagði nú í vikunni 170 tonn af slægðúm fiski með haus á land til söltunar hjá Kaup- félagi Isfirðinga. B.v. Úranus land- aði í gær og dag um 200 tonnum af saltfiski hjá Kaupfélagi Isfirðinga. Þéssar fisklandanir togbáta og tog- ara gefa talsverða atvinnu i bæinn, en lítið er um aðra vinnu. Hús til sölu. Tilboð óskast í hálfa hús- eignina Sundstræti 31. Upplýsingar gefur: Guðm. E. Guðmundsson, Hlíðaroeg 33, Isafirði. Til sölu til niðurrifs íbúðar- og pen- ingshús á Geirmundarstöðum í Fljótum. Semja ber við: Vcrnharð Jósepsson, Hnífsdal. „Faiilasifoss". Hinn nýji Gullfoss Eimskipafé- lagsins er væntanlegur hingað í kvöld. Ekki mun hann eiga að koma inn fyrir, en bátar verða til taks til að flytja bæjarbúa út í skipið. Andlát. Hjálmar Hafliöason andaöist 18. þ.m. Hann var tæp- lega 85 ára «ð aldri. Jaröarför hans fór fram i dag. Gísli Björnsson, vistmaður á Elliheimilinu, andaðist 6. þ.m. Hann var tæplega níræður að aldri. Helgi Kr. Jónsson, Bjargi hér í bæ, andaðist 8. þ.m. Hann var á 78. ári er liann lést. Hjónaband. Þann 12. maí s.l. voru gefin sam- an i hjónaband hjá bæjarfógeta Tómasína Tómasdóttir og Jón H. Fjalldal, bóndi á Melgraseyri. Skut- ull óskar brúðhjónunum til ham- ingju. „Sólskrikjur“, barnakór úr Bolungarvík, skemmti bæjarbúuin með söng í Alþýðuhúsinu 14. þ.m. Söngstjóri var Kristján Júlíusson, kennari, en undirleik annaðist Ragnar H. Ragn- ar. Börnin sungu af hjartans list, og vöktu óskipta hrifningu áheyr- enda, sem gjarnan hefðu mátt vera fleiri. Fimleikasýning. Fjögra manna flokkur frá Siglu- firði, undir stjórn Helga Sveinsson- ar, sýndi hér fimleika 17. og 19 þ. m.. Voru það mest æfingar á tvíslá og svifrá og ennfreinur erfiðar jafnvægisæfingar og stökk, og vöktu sýningarnar mikla hrifningu áhorfenda. Héðan fór flokkurinn til Vestmannaeyja. Skólaslit. Tónlistarskóla Isafjarðar var slit- ið 24. þ.m. og fóru skólaslitin fram í Gagnfræðaskólanum að viðstödd- um foreldrum nemenda og nokkr- um gestum. Við þetta tækifæri léku 25 nemendur skólans einleik á píanó og 5 á orgel, en auk þess var samleikur á pianó og orgel. Aðal- kennslugreinar skólans í vetur voru pianó- og orgelleikur og hljóm- fræði. Kennarar voru skólastjórinn, Ragnar II. Ragnar og Jónas Tómas- son, tónskáld. Verðlaun voru veitt fyrir sérstaka hæfileika og ástund- un við námið og hlutu þau þessir nemendur: Jón S. Jónsson, Óttar Halldórsson og Bergljót Halldórs- dóttir fyrir píanóleik og Sigriður J. Nordquist fyrir orgelleik. Við skólaslitin fluttu ræður Ragnar H. Ragnar, sem lýsti starfsemi skólans og Ólafur Magnússon, sem talaði fyrir hönd Tónlistarfélags Isafjarð- ar og þakkaði skólastjóranum mik- ið og gott starf. Þetta er annar vet- urinn, sem skólinn starfar á vegum Tónlistarfélagsins og lauk starf- seminni að þessu sinni ineð því, að ncmendurnir héldu opinbera hljóm leika í Alþýðuhúsinu i gærkvöld.

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.